Aijt!
fimmtudagur, mars 03, 2005
Ææælar!
Skrítið að byrja að skrifa aftur eftir að hafa legið í klaka.
Hér húki ég í þröngum 4 feta gám fyrir utan Smáralind og sel notaða bíla fyrir stórveldið Heklu. Veðrið er fallegt en það er stutt í hrollinn. Erum búnir að selja 6 kvikindi í dag sem er bara þokkalegt. Í heildina eru 270 bílar seldir síðan að útsalan hófst fyrir rúmri viku. Vantar einhverjum bíl annars?? Er með fallega Opel Corsu á 220.000 kell sem er tombóluprís. Ekta dömubíll í snattið. Þetta var sölumennska dagsins ...
Líðanin er þokkaleg og líkaminn er að aðlagast miklu æfingaálagi. Við æfum sex sinnum í viku og þar af dettum við þrisvar í klassann í pumpið. Hef ekki tíma fyrir neitt. Vinn eins og rotta og er kominn seint heim á kveldin. Vinnan göfgar manninn segir máltækið og því tek ég seint upp á því að kvarta.
Aijt!
þriðjudagur, janúar 04, 2005
Gleðilegt ár ...
Nýtt ár er hafið. Daglegt líf fellur í fastar skorður og nú fer maður að hlakka til sumarsins. Aðeins 5 mánuðir til stefnu, öss. Þetta var fín hátíð en tímasetningin var samt pirrandi. Hitti akkúrat á helgi og því ekki um mikið frí að ræða nema hefðbundið helgarfrí. Á næsta ári verður aðfangadagur jóla á laugardegi og ekki batnar ástandið við það.
Þetta var röfl og væl dagsins.
Flugmaðurinn ...
Ég vil opinberlega óska mínum gamla góða vin innilega til hamingju með sumarstarfið hjá Flugleiðum! Sá maður er Snorri B. Jónsson og er húmoristi af Guðs náð fyrir utan að vera alveg snarbilaður. Er stoltur af þér gamli graði. Þú átt þetta skilið eftir langt og strangt nám og mikla þolinmæði! Leitt að Pjetur Verkó gat ekki fetað í sömu spor sökum sjónskekkju, litblindu og -40 á báðum augum ... haha. Nei, þetta er nú bara grín Pjetur minn. Hann brilleraði nú á bóklega hlutanum í flugskólanum en mátti ekki halda áfram að fljúga sökum lélegrar sjónar. Svekkjandi að svona "fötlun" komi í veg fyrir langþráðan draum.
Aijt ...
miðvikudagur, desember 29, 2004
Trúrækni ...
Fyndið nokk sem gerðist þegar við sátum í messu á jóladag. Á leið inn fékk ég sálmablað þar sem dagskrá messunnar var skjalfest lið eftir lið í smáatriðum. Í smáu letri á vissum stöðum stóð meira að segja hvenær átti að rísa úr sætum og hvenær átti að setjast. Gott og vel. Liðið var á messuna og allir höfðu risið úr sætum samkvæmt venju. Presturinn las úr biblíunni og spenna lá í lofti. Upplestur trúarjátningarinnar var næst á dagskrá. Það stóð skýrum stöfum á sálmablaðinu að söfnuðurinn átti að rísa úr sætum og standa meðan presturinn þuldi upp úr biblíunni og fram yfir trúarjátningu. Þegar kom að trúarjátningu ákváðu einn til tveir besserwisserar að setjast. Og að sjálfsögðu vegna óöryggis og hræðslu við að gera sig að fífli ákvað fólk að fylgja straumnum og setjast líka sem var bara vitleysa. Ég stóð sem fastast og lét ekki til leiðast. Ég sá að fólk var farið að setjast niður í kringum mig og ég hugsaði: "heyrðu, hver djö ..." Ég fann undirmeðvitundina öskra á mig: "sestu maður, allir eru að stara á þig!" Skynsemin sagði mér hinsvegar að ég hafði rétt fyrir mér og beit á jaxlinn þrátt fyrir þennan megna vandræðaleik. Smátt og smátt fór fólk að átta sig og einn og einn stóð aftur upp, settist aftur niður o.s.frv. Það var mikið óöryggi í gangi og það var eins og fólk vissi ekki hvað það ætti að gera. Samt stóð skýrum stöfum á sálmablaðinu að það ætti ekki að setjast fyrr en eftir trúarjátningu! Fyndið, að þegar einn eða tveir skíta upp á bak þá þarf restin af skrílnum að gera það líka. Alltaf að láta skynsemina ráða! :D Ég átti erfitt með að springa ekki úr hlátri þetta var svo pínlega asnalegt, en svona er þetta.
1680??
Svo vorum við systkinin ekki ánægð með predikunina sem var í stuttu máli á þá leið að allir ættu að lifa í ljósinu frá Guði og ganga á hans vegum í einu og öllu, annars týninst það í skugganum og verður vansælt o.s.frv. Feit alhæfing þar á ferð. Minnti á heilaþvottastarfsemi frá miðöldum.
Aijt ...
þriðjudagur, desember 28, 2004
2004 ...
Gleðilega hátíð landsmenn nær og fjær. Nú styttist óðum í nýtt ár og óhjákvæmilega fer maður að líta yfir farinn veg á árinu sem er að líða. Hummm, hvað gerðist nú markvert sem vert er að spá í? Ja, við FRAMarar héldum okkur uppi 5 árið í röð að ég held. "Kraftaverk" læsti hrömmunum í brækurnar og togaði okkur upp úr frjálsu falli í 1. deild. Ég verð nú að viðurkenna það að ég var svartsýnn, sitjandi á bekknum og lítandi mína menn tapa 6-1 á heimavelli í síðasta leik mótstins. Uss! Eftirminnilegast er auðvitað þegar ég eignaðist tvíburana sem reyndust svo ekki vera mínir þegar uppi var staðið ... úff! Þannig var það í draumheimum að minnsta kosti :D Í raunheimum er engin spurning hvað trónir í efsta sæti og það er trúlofun okkar Árdísar á Þorláksmessu. Sérstök stund sem mun vara inn í ókomna framtíð. Næst má nefna fjárfestinguna í Þórðarsveig 24 sem mun skilja eftir sig djúp. Hef bara eitt um það að segja og það er KLASSI! Nohh, og svo kaupin á lúxusveiðistöng og veiðihjólum frá gæðamerki í USA. Mín verður ánægjan að njóta frelsisins úti í vatni næsta sumar og brúka nýju græjurnar, gúffandi nesti og hlustandi á náttúruna. Og svo má náttúrulega ekki gleyma mínum nánustu sem eru við góða heilsu eftir árið. Engin áföll þar á bæ þökk sé góðri heilsu og jákvæðu hugarfari. Amma gamla er reyndar orðin ansi máttfarin en það er töggur í gömlu. Hún étur 150 ár í eftirmat án þess að svitna. Flutningur gamla settsins á Flókagötu 57 skilur eftir sig nett ör. Þangað duttu þau af Selvogsgrunni 16 þar sem kallinn varð að þeim manni sem hann er í dag, alveg gegnsteiktur ;D Flókagatan er reyndar alveg helkósí og verðugur arftaki Grunnsins. Mínar utanlandsferðir til meginalands Evrópu standa einnig upp úr því innleggið í reynslubankann mun koma sér vel í átökum lífsins. Það er af nægu að taka en þetta er það helsta að ég held. Hef pottþétt gleymt einhverju en þá hendi ég því bara inn í viðauka!
Aijt ...
miðvikudagur, desember 15, 2004
Bwahaha!
Beina tilvitnunin hér að neðan segir allt um Kanann sem segja þarf!! (Ekki það að ég sé að alhæfa um alla Kana og þar með freta mig fótinn með haglara)
"I WOULD REALLY LIKE TO KNOW WHAT THE FREAK IS UP WITH THIS HORRIBLE SHOW!!!IT'S MINDNUMBLINGY RETARDED! THAT SPORTICUS GUY LOOKS LIKE HE'S AT LEAST 45. HOW SICK IS THAT? SOME OLD MAN JUMPING AROUND WITH A LITTLE PINK-HAIRED GIRL AND SOME SERIOUSLY F-UPPED PUPPETS! THE MUSIC IS TECHNO AT ITS WORST AND THE LIPSYNCHING IS EVEN MORE TERRIBLE THAN THAT! HELL, I DIDN'T EVEN KNOW THEY HAD T.V. IN ICELAND--COME TO THINK OF IT, WHERE IN THE HELL IS ICELAND ANYWAY? YOU MEAN TO TELL ME IT'S NOT SOME MADE UP PLACE LIKE THE NORTH POLE? THERE ARE ACTUALLY REAL PEOPLE LIVING THERE AND THIS IS THE KIND OF CRAP THEY LIKE TO WATCH ON TV?"
Málið er að ég datt inn á síðu af tilverunni þar sem einhver gaur er að commenta á Latabæ sem sýndur er þar vestra. Þar á meðal commentar þessi svarti sauður hér að ofan og opinberar ófyrirgefanlega vankunnáttu sína og heimsku .. HAH :D
Óli brósi ræðir ...
Minn ástkæri og elskulegi bróðir hefur opnað bloggsíðu fyrir heimspekilegar hugleiðingar sínar. Tilvalin lesning fyrir djúpa hugsuði sem hafa gaman að tilgangi hluta, orsök og afleiðingu og mörgu fleiru. Það er af nægu að taka þar á bæ! Síðuna finnið þið hér. Einstakt stykki get ég sagt ykkur ....
Aijt ...
mánudagur, desember 13, 2004
Morð og aulaháttur ...
Hvað er að gerast á klakanum þessa dagana?? Menn eru að puncha hvorn annan yfir móðuna miklu! Maður var drepinn með hnefahöggi í Keflavík um vikuna og svo annar í Mosfellsbæ um helgina. Sú árás var tilefnislaus með meiru segja heimildarmenn fjölmiðla. Þarf maður að fara að ganga um í skotheldu vesti og sofa með eina 9 mm. undir koddanum á næturna? Ég vona að menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir láta hnefann leika lausum hala í trýnið á félaganum á næstu helgum! Svona gerir maður bara ekkii!
Aijt ...
fimmtudagur, desember 09, 2004
??
Nú þarf kallinn að fara að huga að jólagjöfum handa liðinu. Kannski að maður láti bara tjellinguna um etta. Hún getur dvalið í búðum án matar og drykks í laaaaangan tíma, það er á kristalhreinu. Neinei, það er stemning að detta í búðir og láta taka mynd af sér í kjöltunni á spikfeitum jólasvein. Það eru nú einu sinni jólin :D
Hvað er það í genum, litningum kvenna sem býður upp á svona öfgakennda útrás í verslunaleiðöngrum sem geta staðið í margar klukkustundir. Ég sem karlmaður verð persónulega annoyed eftir svona 7 mín. í hverri búð með konunni. Hún getur dundað sér og skoðað án þess að svitna. Þegar við félagarnir dettum í t.d. Kringluna, þá erum við sestir og byrjaðir að gúffa á McDonalds eftir korter! Svo getum við hinsvegar setið tímunum saman í Plasystation og talað skít eins og 5 ára pjakkar. Erum við svona óþroskaðir greyin? :D
Aijt ...
miðvikudagur, desember 08, 2004
Live ...
Þið sem ekki hafið séð viðtalið við óperuapann og svínið Kristján í Kastljósi getið séð það hér. Það er alveg yfirgengilegt hvað svínið í mannsmynd er dónalegt!!
Aijt ...
mánudagur, desember 06, 2004
Kristján JóJó hvað!
Hef heyrt mikið slæmt um þennan mann undanfarið og er það ekki skrítið! Maðurinn gerði sig að algjöru fífli í beinni útsendingu og var sér og fjölskyldu sinni til háborinnar skammar. Svona hagar maður sér ekki og hvað þá fyrir framan augu alþjóðar. Að láta skap sitt bitna á saklausum spyril Kastljóss er ófyrirgefanlegt og segir allt sem segja þarf um hans karakter. Ég vona innilega að enginn leggist svo lágt að styrkja þennan apa sem apaðist gegnum frekjuna að auglýsa diskinn sinn í beinni útsendingu. Listamenn mæta á styrktartónleika til að láta gott af sér leiða í þágu góðs málefnis en ekki til að fylla vasa sína af seðlum.
Kristján, þú ættir að skammast þín!!!
Aijt ...
fimmtudagur, desember 02, 2004
Um 7% ...
... hækkar áfengis - og tóbaksverð. Hvað er að gerast! Mér er svo sem sama um tóbaksverðið. Það má hækka endalaust fyrir mér enda eru reykingar viðurstyggð djöfulsins! En áfengishækkun er líkt og refsing fyrir fólk sem vill skemmta sér. Það er nógu dýrt fyrir að hrynja í það hér á landi. Nú hefur ástandið versnað til muna. Ég bara veeeeerð að mótmæla þessu. Ég skipa ríkinu að að afnema vsk. af einhverjum vörum sem ég nota á til að brúa gjánna sem myndast hefur! Hananú ...
Jói Fel. keypti af mér tvo frekar dýra blandara í gær sem notaðir verða í þættinum hans. Seinna kom í ljós að í kassann vantaði könnuna á einn blandarann. Úps ...
Uss, þarf að sleppa æfingu í kvöld vegna vinnu! Það er ekki nógu gott ...
Aijt ...
mánudagur, nóvember 29, 2004
Hressandi helgi ...
Já, þetta var viðburðarík helgi og nóg að gerast. M.a. vann ég baki brotnu við að hjálpa pabba og mömmu að flytja búslóðina yfir á Flókagötu þar sem þau munu dúsa sennilega það sem eftir er. Við erum að tala um búslóð úr tæplega 300 fm. einbýlishúsi! Enn er ekki öllu lokið en þau eiga að vera farin út á þriðjudag. Það er alveg hreint ótrúlegt hvað gamla settið hefur safnað og geymt mikið af drasli gegnum tíðina. Bílskúrinn var kokfullur af allskonar drasli sem enginn notaði. Mest af þessu fór beina leið á haugana! Fólk á bara að vera raunsætt og spyrja; Er þetta eitthvað sem ég á eftir að nota seinna? Svarið á að vera já eða nei. Ekki jaaaa, kannski. Það er ávísun á offramboð af drasli!
Í skjóli laugardagsnætur ...
Ég fór út á galeiðuna eftir djammleysi í óralangan tíma. Hitti ég marga góða menn sem settu skemmtilegan svip á kvöldið. Ég tók pöbbarölt með köllunum.is sem kunna svo sannarlega að sletta úr klaufunum. Það er sko engin lognmolla í kringum þá, það er á tæru! Ég var kominn snemma heim í bólið enda uppgefin eftir erfiðan dag.
Aijt ...
Hressandi helgi ...
Já, þetta var viðburðarík helgi og nóg að gerast. M.a. vann ég baki brotnu við að hjálpa pabba og mömmu að flytja búslóðina yfir á Flókagötu þar sem þau munu dúsa sennilega það sem eftir er. Við erum að tala um búslóð úr tæplega 300 fm. einbýlishúsi! Enn er ekki öllu lokið en þau eiga að vera farin út á þriðjudag. Það er alveg hreint ótrúlegt hvað gamla settið hefur safnað og geymt mikið af drasli gegnum tíðina. Bílskúrinn var kokfullur af allskonar drasli sem enginn notaði. Mest af þessu fór beina leið á haugana! Fólk á bara að vera raunsætt og spyrja; Er þetta eitthvað sem ég á eftir að nota seinna? Svarið á að vera já eða nei. Ekki jaaaa, kannski. Það er ávísun á offramboð af drasli!
Í skjóli laugardagsnætur ...
Ég fór út á galeiðuna eftir djammleysi í óralangan tíma. Hitti ég marga góða menn sem settu skemmtilegan svip á kvöldið. Ég tók pöbbarölt með köllunum.is sem kunna svo sannarlega að sletta úr klaufunum. Það er sko engin lognmolla í kringum þá, það er á tæru! Ég var kominn snemma heim í bólið enda uppgefin eftir erfiðan dag.
Aijt ...
föstudagur, nóvember 26, 2004
Jólaskapið ....
... er komið því stutt er í fæðingarhátíð Kristis. Það óma jólalög í vinnunni allan daginn og því er erfitt að lifa sig ekki inn í aðstæður. Svo vorum við að skreyta búðina um daginn. Við settum upp lítið gervi jólatré og úðuðum jólakúlum á það. Svo settum við tóma jólapakka undir til að kynda upp stemningu. Ég og Árdís höfum ákveðið að vera snemma í jólapakkainnkaupum í ár. Við nennum ekki að standa í neinu streði á seinustu stundu þegar í rauninni ætti maður að vera slappandi af með jölaglögg í annarri og piparköku í hinni. Reyndar finnst mér jólaglögg algjör viðurstyggð og veit ég ekki alveg af hverju ég nefndi það. Skeytum ískaldri mjólk inn í og þá er ímyndin fullkomin :D Það sem setur skugga á þessi jól er sú staðreynd að systkini mín verða ekki til staðar þ.e.a.s. Jón og Stefanía sem bæði verða fjarri góðu gamni um jólin. Það má samt vera að Jón detti í nokkra bjóra um áramótin og samfagni með landanum.
Aijt ...
mánudagur, nóvember 22, 2004
Smá tiltekt ...
"Ég hef ákveðið að losa mig við eftirtalda aumingjabloggara úr linkasafni mínu ( í stafrófsröð):
(A) Hagnaðurinn"
- sagði Buffið í blogginu sínu.
Þessu verð ég að vera sammála!
Ástæða? Tjaaaaaa, engin sérstök..
Aijt ...
Digital ..
Ég þarf að drífa mig að kaupa straumbreyti fyrir hleðslutæki myndavélarinnar minnar. Langt er síðan ég hef tekið myndir af einhverju spennandi. Það er til skammar að vera með bloggsíðu og bjóða ekki upp á neinar myndir. Það er líkt og að selja popp án Coca Cola. Gengur ekki upp! Reyndar eru einhverjar myndir til staðar, þær eru bara svo helvíti gamlar!
Slagsmál dauðans ...
Sáuði slagsmálin í leik Detroit Pistons og Indiana Pacers í NBA deildinni??? Usss ..
Sjá þessa risavöxnu negra og með þessa spaða maður! Það var nú einn óheppinn spanjóli sem fékk tvær krumlur í trýnið! Það ótrúlega var að hann stóð höggin af sér!! Þetta var rosalegt. Það varð allt vægast sagt vitlaust í höllinni. En pælið í heimsku að láta sér detta í hug að fórna sér í heila stúku eins og einn negrinn í Indiana liðinu gerði og á útivelli í ofanálag!!!!! Lét sig bara gossa í mannhafið og lét höggin dynja .. hahaha. Hann var heppinn að sleppa lifandi greyið. Hann fékk bann út keppnistímabilið fyrir vikið. Þvílík heimska, jeminn einasti ...
Verkfalli lokið ...
Verkfalli lauk í vikunni sem leið með sáttum kennara og ríkis. Hvaða afleiðingar mun þetta hafa?? Ég bið til guðs um að kjarasamningar annarra starfsstétta ríkisins gangi mjúklega fyrir sig í náinni framtíð. Það sísta sem ég vil núna er aukin verðbólga og leiðindi sem henni fylgja! Það er svo mikið af ungu fólki sem er að taka lán og verðbólga myndi setja allt á annan endann! Við vonum það besta ....
Aijt ...
fimmtudagur, nóvember 18, 2004
PE4 ...
Það er ekki sjón að sjá kallinn í vinnunni í dag. Með bauga og þrútin augu. Ef viðskiptavinur kvartar undan lélegri þjónustu þá segi ég bara; "Afsakaðu sljóleikann. Málið er að ég var í PLAYSTATION í alla nótt!! Já, við félagarnir fórnuðum okkur bókstaflega fyrir keppni í fótboltaleiknum, Pro Evolution 4, nýjasta afsprengi Konami fyrirtækisins. Þetta er hreint út sagt magnað kvikindi! Við byrjuðum í kjallaranum heima hjá Baldri en urðum seint undir kvöld að flytja okkur yfir í bílskúrinn þar sem leiknum var varpað á bílskúrshurðina! Hiitinn hékk í 4 gráðum og við kappklæddir á ísköldu steingólfi með fjarstýringar í hönd. Þarna sátum við stífir af kulda til 03.30 í nótt eða þar til við vorum hættir að sjá vegna kulda og vosbúðar. Þetta minnti á gamla verbúð þar sem ekki var kvartað! :) Ég er alveg að mygla úr þreytu .. uss.
Aijt ...
miðvikudagur, nóvember 17, 2004
Allt á kafi!
Það snójaði öllu í kaf á örskotsstundu í eftirmiðdaginn í gær. Bílar á sumartúttum lentu í ruglinu og teppur mynduðust þess vegna út um alla borg. Það er ótrúlegt með landann hve seint hann skiptir yfir á naglann. Það á einnig við um undirritaðan. Maður nennir einfaldlega ekki að hugsa um þetta fyrr en eftir jól :) Tíðin undanfarna vetur hefur verið svo góð. Ósjaldan er engin snjór frameftir vetri og menn á stuttbuxum hér og þar í desember. Nei, það er nú fremur óskhyggja en hitt. Reyndin er að veðurfar á Íslandi hefur batnað til muna seinustu ár líkt og annarsstaðar á hnettinum.
Orsök: Gróðurhúsaáhrif.
Afleiðing: Aukinn hiti á yfirborði jarðar; skaðlegir geislar sólar umsveipa landann; jöklar bráðna; yfirborð sjávar hækkar; mögulegur heimsendir eftir einhver hundruð ár??
Sá spyr sem ekki veit ...
Meira ef Runnanum ...
Quote: "Menn telja að ein ástæðan fyrir sigri hans vera þá að republikanar settu svokallaðar "ballot questions" á kjörseðlana í nokkrum fylkjum, sem snertu hjónaband samkynhneigðra. Þetta varð til þess að hvetja mjög langt-til-hægri-kristna að mæta á kjörstað og hefur örugglega orðið til þess að Bush vann sum þessara fylkja. Kéllingar í Louisiana og víðar, sem ekki höfðu kosið í 30 ár, dröttuðust út úr húsi 2. nóvember 2004 til að kjósa þar sem hjónaband samkynhneigðra var á kjörseðlinum! 8 milljónir kerlinga og karla af sama kalíber gerðu slíkt hið sama. Það er reyndar alveg ótrúlegt hvað stjórnmál í Ameríku snúast mikið um trúmál, þrátt fyrir að hér ríki aðskilnaður ríkis og kirkju. Heima á Íslandi snúast stjórnmál aldrei um trúmál þrátt fyrir að þar ríki ekki aðskilnaður ríkis og kirkju....."
Hér vitna ég í stjórnmálafræðing er býr í US of A. Hún lýsti ástandinu sem þessu og taldi þetta orsök á velgengni Runnans í forsetakosningunum.
Bölvað þetta fanatíska heittrúaða lið! Þetta land er yfirtroðið af mótsögnum sem ná ekki nokkurri átt!
Eggi kveður að sinni.
Aijt ....
þriðjudagur, nóvember 16, 2004
Góðan og glaðan ískaldan daginn gott fólk!
Ég var að skoða bloggið hjá Skallanum og las þar um vonbrigði hans með forsetakosninguna í US of A. Vil innilega hrósa þér fyrir að hafa gengið í svörtu daginn eftir kosningavökuna Skalli minn .. hahaha :) Mér þætti líka gaman að vita hvað það er sem 51% bandarísku þjóðarinnar sér við þennan hvítflibbaviðbjóð. Er fáviskan svona yfirgengileg eða eru menn hreinlega heilaþvegnir af hræðsluáróðri og viðbjóði. Ég held að seinni kosturinn sé líklegri. Guð hjálpi okkur næstu fjögur árin!!
Afturkoman! (wud?)
Hvernig er gott að skella enska orðinu comeback yfir á íslensku? Afturkoma er alveg fáránlegt orð og varla brúkandi meðal manna. Gott og vel. Nú hef ég ákveðið að taka upp blogghanskann að nýju, pússa rykið af bloggskónum og henda bloggárum fyrir borð og byrja að róa aftur. Það er alveg magnað að detta í skrifgír og láta allt flakka. Með takmörkum þó.
Kennaraverkfall ...
Fæst orð bera minnsta ábyrgð og því ætla ég að segja sem minnst. Maður getur engan veginn sett sig í spor þessara stéttar en þó hefur maður á tilfinningunni að of langt sé gengið. Eru kennarar virkilega með svona lág laun í samanburði við aðrar stéttir? Grunnlaun nýútskrifaðra læknakandítata eru í kringum 200 þúsundin og ekki fá þeir borgað sumarfrí. Þó er grunnnám þeirra 6 ár!! En að sjálfsögðu verður að bera gaum að þeirri staðreynd að kennarar eru "mótendur" komandi kynslóða sem eiga að bera þetta þjóðfélag uppi. Þetta er flókið mál. En að mæta ekki til vinnu í mótmælaskyni þegar landslög skipa svo fyrir. Hvers eiga greyið börnin og foreldrar að gjalda? Ussummsvei.
Aijt ...
þriðjudagur, október 19, 2004
Himneskar melódíur ...
Uss, lagið Burning Heart úr stórmyndinni Rocky glymur mér í eyrum. Svei mér þá, það er ekki laust við að gæsahúð dansi steppdans á bakinu á mér. Þetta er mjöööög gott lag sem allir ættu að eiga í græjunum sínum. Talandi um lög .. ég er búinn að downloada alveg helling af góðum lögum sem munu nýtast vel á næstu karlakvöldum hjá mér og Gunna Sækologist. Vito, þessi lög eru of mjúk fyrir þig! Þig skortir kvenlega eðlið þ.e.a.s. fítusinn sem dýrkar GayBastard tónlist :D Það er annað en ég og Gunni!!
B-shit ...
Svakalega langt er síðan ég hef bloggað um George B-shit Bush .... Best að gera það hér og nú!
Maðurinn er api og málið dautt :D
Aijt ...
miðvikudagur, október 13, 2004
Hin nána framtíð ...
Þá er það skjalfest og handsalað. Ég skrifaði í hádeginu undir þriggja ára samning við FRAM FFR. Þetta var ánægjuleg stund því kallinn hefur jú verið blár í gegn síðan seint á seinustu öld. Af tilefninu var langloka gúffuð með hvítlaukssósu, rauðlauk og papriku. Ágætis biti þar á ferð.
Þórðarsveigur 24 ...
Já, það verður væntanlega heimilisfang mitt áður en langt um líður. Við hjúin erum búin að finna íbúð í Grafarholti sem verið er að byggja. Afhending verður í mars á næsta ári. Erum að sjálfsögðu hæstánægð og hlökkum mikið til að versla innbú og fleira.
Aijt ..
laugardagur, október 09, 2004
RAMS DROP STEFANSSON INTEREST
Derby are unlikely to follow up their interest in Icelandic defender Eggert Stefansson as they search for a replacement for the injured Mo Konjic.
Var úti í 5 skitna daga!! Fór á 2 æfingar með unglingaliðinu því aðalliðið var í fríi fyrsta daginn minn. Fyrri æfingin var feit þrekæfing! Hin var keyrsluæfing. Við æfðum í gervigrasshöll því það rigndi svo mikið um nóttina. Var nokkuð ferskur á þessum æfingum og stóð mig vel. Daginn eftir mætti aðalliðið eftir að hafa verið í 2 daga fríi. Planið var að hafa eina æfingu um morguninn þar sem leikur yrði spilaður. Ég var enn að jafna mig eftir æfingarnar daginn áður enda ekki í mínu besta standi! Var þreyttur frá fyrstu sekúndu í leiknum en byrjaði samt vel. Þegar leið á fór einbeitingin að dvína því ég náði vart andanum af þreytu. Ég veit ekki hvernig ég fór að því að lifa þennan hálftíma af því ég fann ekki fyrir löppunum mest allan tímann. Í þessum leik gerði ég mörg tæknileg mistök sem ég er ekki vanur að gera. Ég misreiknaði 2-3 skallabolta, var of langt frá manninum mínum og var svifaseinn sökum þreytu. Ég var semsagt feginn þegar leiknum var flautað af en skammaðist mín vegna lélegra frammistöðu. Eftir æfinguna ældi ég næstum því þegar inn í klefa kom. Svo lá ég í baði í klukkutíma til að láta þreytuna líða úr löppunum. Daginn eftir var kærkomið frí þar sem ég fór í fitness stöð og skellti mér í heita potta. Ég mætti ferskur á fimmtudagsæfingu og stóð mig mjöööög vel ef ég segi sjálfur frá. Á þeirri æfingu náði ég að sýna allar mínar bestu hliðar enda mun ferskari en áður. Mér varð samt ljóst að þeir höfðu gert upp hug sinn eftir helv. leikinn þrátt fyrir að þeir vissu að ég væri ekki í mínu besta leikformi enda hafði ég æft sjálfur á gervigrasi í rúmar þrjár vikur á Íslandi!! Eftir æfinguna var ég samt sáttur því ég hafði sýnt og sannað að ég ætti í fullu tré við þessa gaura. Í hádegismatnum eftir æfinguna tók Georg Burley mig á fund og sagði mig ekki tilbúinn í 1. deildina eins og staðan væri. Ég var ekki sáttur enda fékk bara auma 5 daga til að sanna mig. Ég hefði þurft minnst 2 vikur til þess. Hann sagðist reyndar ætla að fylgjast náið með mér áfram en maður trúir því nú tæplega. Sennilega bara kurteisishjal í stað þess að segja FUCK OFF back to Iceland! Ég endaði ferðina þó vel og sýndi hvað í mér bjó. Fjallgangan heldur áfram. Þetta er harður bransi og ekkert sjálfgefið að maður komist neitt.
Ég get ekkert annað en haldið áfram að æfa og koma mér í betra stand. Það er sama hve góður þú ert. Ef þú ert ekki í standi þá hefuru ekkert að sýna!!
Aijt ...
föstudagur, október 01, 2004
England, here I come!
Þá er það komið á hreint kæru hálsar. Ég held til Englands sunnudaginn 3 október kl. 7.45 að staðartíma. Heimförin er ekki skjalfest því allt er óljóst um framhaldið. Förinni er heitið til Derby County, þess gamalgróna félags í 1. deildinni. Nú er bara að sýna hvað í manni býr og kick some ass!!
Wish me luck ..
Aijit ..
laugardagur, september 11, 2004
föstudagur, september 03, 2004
Öss ...
Þetta kvef tekur enga fanga! Bara one way ticket to planet misery. Þetta er ekki eðlilegt ástand á manni. Stíflað nef 24/7 og svo óþrjótandi hálsbólga með tilheyrandi barkahósta. Ég er búinn að vera svona í næstum tvær vikur og þetta er ekkert að renna af manni. Eru berklar að ganga eða?? Án djóks þá er þetta orðið all verulega þreytandi. Það er eins og þessar pestir liggji í dvala milli blaðsíðna skólabókanna yfir sumartímann og svo um leið og kvikindin opna skræðurnar á haustin, þá verður allt grasserandi í viðbjóði sem engan endi ætlar að taka. Er hægt að setja viðskiptabann á svona pestir Hagnaður??? Sennilega ekki .....
Fáviska ...
Ég var að lesa ritið Orðlaus í gær og sá þar viðtal við nokkra gallharða einstaklinga. Seinasta spurningin hljóðaði svo: Hvað eru útlánsvextir? Þetta voru einstaklingar á öllum aldri og enginn hafði hugmynd um hvað útlánsvextir voru!! Ég á ekki til aukatekið orð ....
Svo annað. Hægt var að sjá svör við öllum spurningunum neðst á síðunni. Ein spurningin fjallaði um hver yrði næsti utanríkisráðherra. Í svörunum stóð: Halldór Ásgrímsson! Orðlaus, common! Halldór er frávarandi utanríkisráðherra og næsti forsætisráðherra. Eggi mælir með að ritskoðari ritsins verði rekinn ....
Í sama riti sá ég heilsíðu þar sem mestu bad ass töffarar landsins komu saman í einum pakka. Gerð var könnun meðal ungra kvenna hér í borg um hverjir væru m.a. snoppufríðastir, mest sexy o. fl. .... Gott og vel, kjarni málsins er sá að Jón bróðir var meðal þessara hönka!! Congrats bro ... þú heldur merki okkar bræðra á lofti!
Aijt ...
mánudagur, ágúst 30, 2004
Billy Ocean ...
Helgin var rosalega viðburðarík og ein sú skemmtilegasta í langa stund. Við félagarnir tókum smá ölæði á laugardag sem var algjört brill. By the way, ég mæli með að fólk skelli sér á tónlistarvef (Kaaza) og downloadi -Get out of my life, get in to my car- með Billy Ocean töffara. Kröftugur slagari frá the 8o´s sem fær hárin til að rísa og adrenalínið að flæða. Sunnudagurinn fór í lúr fram yfir hádegi, veiði fyrir sunnan fjall og síðast en ekki síst spólugláp á Eggertsgötunni, í greni Vito Corleone. Þar var einnig Ólafur Ægisson sem kallar sig Hrottann í daglegu lífi. Hann var hress og borðaði kex.
Já, það er gaman að lifa ...
Aijt ...
föstudagur, ágúst 27, 2004
Þreytt ...
Ég get svo svarið það. Í gær og í dag hafa gengið upp að mér um 100.000 kvikindi og spurt mig um Jón brósa og Rússaævintýrið auk Óla og yfirlýsingu hans um að hætta með landsliðinu. Þetta er orðið veeeerulega þreytt og pirrandi. Ég veit að fólk gerir sér enga grein fyrir þessu en samt sem áður .. PAIIIIN!!!!!!
Ze Night of Culture ...
Fáein staup af bergvatni hafa runnið til sjávar síðan ég álpaðist til að vinna eitthvað í essari blessuðu bloggsíðu. Ég hef hreinlega ekki dottið í skrifgírinn eins og ég er vanur. Í raun hefur ekki margt verið í frásögur færandi nema kannski þegar ég rann fagmannlega á KA vellinum fyrir norðan og reif aftanílærisvöðvann í drasl! Reyndar tognaði ég bara en er ekki enn orðinn góður. Í ofanálag nældi ég mér í fjórða gula spjaldið og fór því sjálfkrafa í bann í næsta leik sem er gegn KR. Sama kvöld tók maður terpentínu í aðra og corona í hina og teigaði í góðra vina hópi. Bærinn var kokfullur af blindfullum kvikindun í leit af mökum. Fullir kallar með besefann úti og ælandi tjellingar með maskarann niður á kinnar. Köllum þetta bara Menningarnóttina góðu. Fjöldamet var sett þennan dag þar sem um 100.000 kvikindi mynduðu haug downtown Reykjavík. Ég gat nú ekki betur séð en að svipaður fjöldi væri á ferli í skjóli myrkurs. Við tókum púlsinn á nokkrum sveittum stöðum m.a. Vegamótum, Prikinu, Sólon, Felix og Hverfiz. Rúsinínan í pylsuenda þessarar nætur var biðin í viðbjóðsleigubílaröðinni. Við erum að tala um 120 mínútur eða 7200 sekúndur í þessum viðbjóði og í ofanálag með þessa trefla fyrir aftan okkur maður! Talandi um að hnakkríða. Þeir voru límdir aftan á okkur þessi kvikindi, reykjandi sígarettur með þvílíkri ákefð að feitasti skorsteinn yrði stoltur af. Ég var orðinn allverulega slakur af slappleika þar sem sígarettumengunarský var andrúmsloft okkar þennan langa morgunn. Hvar er golan þegar maður þarf á henni að halda!!?
Asswhipped Vito punk ass ...
Um daginn kíkti ég svo á Vito félaga Corleone og íbúðina hans sem er sweeet. Hún er staðsett á Eggertsgötunni og er ein af mörgum á Stúdentagörðunum svokölluðu. Það þarf ekki að spyrja að því. Við tókum nokkra leiki í Iss Pro og ég valtaði yfir Vito greyið. Ég lét vera að trashtalka félagann því hann var á barmi taugaáfalls. Það munaði litlu að hann dræpi sig þegar ég vann lokaleikinn 2-1 í hörku rimmu þar sem hann skoraði sjálfsmark .. bwahaha! Ég get ekki beðið eftir næsta einvígi ...
Laugardagur nálgast. Nokkrir kaldir verða teknir og kannski eitthvað meira ...
Uppástungur???
Aijt ...
þriðjudagur, ágúst 17, 2004
Bömmer ...
Lenti í algjöru tjóni með fartölvuna mína. Ég var að gera og græja einn daginn þegar allt heila klabbið fraus. Ég slökkti á tölvunni og endurræsti. Þegar kom að því að logga mig inn þá vildi hún ekki þekkja lykilorðið mitt og gerir ei enn! Afleiðingin er sú að ég kemst ekki að öllum nýlegu myndunum sem ég hef tekið og lofaði að henda inn á síðuna. Þetta er algjört vesen. Flestir í mínum sporum myndu fara með tölvuna í þjónustuver en ég er handviss um að kvikindin þar taka "30.ooo" fjólubláa fyrir klukkutímann! Frekar reyni ég að græja þetta sjálfur ... það held ég nú.
Aijt ...
laugardagur, ágúst 14, 2004
......
Austurvöllurinn var ljúfur í dag. Hitinn var gífurlegur og ekki kólnaði við að spila hakkisakk við önnur þrjú kófsveitt kvikindi. Ég gat ekki drullu í hakkisakkinu og dró mig fljótlega í hlé til að verða mér ekki til skammar. Við komum við á Glaumbar og horfðum á Króata rusla íslenska liðinu upp! Það þarf ekki að spyrja að því. Nákvæmlega sama byrjunarlið og á EM þar sem við vorum teknir og barðir í drasl m.a. af Króötum sem fóru jafn létt með okkur í dag. Það var pína að horfa á essa hörmung. Ég var að enda við að gúffa í mig tveimur spikfeitum svínakótilettum með frönskum og kryddsósu. Ummmmm! Er saddur og sáttur með lífið.
Um daginn var Fahrenheit 9/11 tekin í guðatölu hjá mér. Þessi mynd er algjör snilld, sérstaklega í ljósi þess að Bush kemur út eins og versta pissudúkka. Það kom fram í myndinni að á hans fyrsta fucked up kjörtímabili var hann 80% af tíma sínum í fríi!! Sjá svo trúðana sem eru að vinna í kringum manninn. Ráðherrar sem geta vart skeint sig sjálfir. Það er lygilegt í svona stóru landi að menn sem starfa í stjórnmálum ("fyrir fólkið og af fólkinu") geta setið í stjórnum fyrirtækja og haft ýmsum hagsmunum að gæta sem svo stangast á. Hér á landi eru lög um opinbera starfsmenn sem koma algjörlega í veg fyrir slíkt. Ríkir algjör lögleysa í byssulandinu glaða??? Þetta er stórfyndið sem og alveg hneykslanlegt...
Aijt ...
þriðjudagur, ágúst 10, 2004
Molla!
Þvílík hitamolla sem ríkir á landinu í dag a.m.k. hér sunnanlands. Ég er bara á stuttbuxum og T-shirt í jobbinu. Samt er ég að bráðna undir stýri með alla glugga opna. Þetta er eins og versti hárblásari, stilltur á hæstu stillingu og svo þegar ég rúlla út úr bílnum þá er ég eins og Ace Ventura um hárið .. alveg hreint fáránlegt.
Í gærkvöldi tókum við Grindvíkinga og sigruðum þá í hörku rimmu. Þetta var ekki leikur fyrir augað en þó þrjú mörk skoruð. Klassi það! Við FRAMarar komnir úr fallsæti alla leið upp í áttunda sæti. Nú er gaman að lifa! Næsti leikur er rosalegur. Hann er gegn Fylki í Árbænum og skylda að allir mæti. Koma svo!
Fallega!
Var að keyra Laugaveginn í gær og sigldi framhjá háöldruðu og frekar subbulegu kvikindi, vaggandi eins og versti krypplingur. Hann virtist ætla að gefa upp öndina hvað á hverju en hafði þó næga orku til að spýta þessari suddalegu slummu. Liturinn á slummunni er vart í frásögu færandi þvílíkur viðbjóður var hann ... össss! Svo var kallinn með galopna rúðuna og sá slummuna falla með þunga few inches away. Ég heyrði meira að segja lendingarhljóðið .. ugh!
Aijt ...
föstudagur, ágúst 06, 2004
Myndir...
Hér eru myndir frá því þegar Stebba systir kom í heimsókn frá Rednecknýlendunni Búðardal :) Fleiri myndir koma seinna m.a. frá Verslunarmannahelginni og svo þegar ég kenndi Óla bróður að kasta flugu, það var stuuuuð!
Góða Helgi allihoppa!
Aijt ...
miðvikudagur, ágúst 04, 2004
Ofvaxið grey ...
Fyndið hvernig fólk panikerar stundum þegar það lendir í lítilli lyftu ásamt manneskju sem það þekkir ekki baun. Ég var staddur í lyftu á leið niður af 5. hæð Tollstjórahússins við Tryggvagötu. Á 5. hæðinni hafði ókunnur maður hoppað með mér inn. Þetta var feitlaginn maður, leit út eins og ofvaxinn krakki. Gott og vel. Lyftan var þröng og fólki er ekkert sama þegar ókunnugt kvikindi dettur óboðið inn á persónulega svæði þess. Okkar persónulegu svæði skárust a.m.k. í þessari smáu lyftu en mér var slétt sama enda ýmsu vanur. Gaurinn var hinsvegar alveg á nálum greyið en ég spáði ekki mikið í það fyrr en ég tók eftir að hann rýndi í pappírshrúgu sem hann hafði milli spaðanna. Ég ákvað að gjóta augunum á lestrarefni félagans. Neiiii sko! Aumingja manngarmurinn hélt á því öfugu og þóttist djúpt sokkinn í málefni þess. Þettta var aaaaansi skondið ....
Tilviljun?
Kallinn á leið í Hafnarfjörð og umferðin að gera mig crasy. Ég stoppa á rauðu einhversstaðar í Garðabæ og lendi á eftir rauðri Corvettu sem er bandarískur sportbíll. Gott og vel. Á sama tíma glymur þetta kunnuglega lag í eyrum. Í útvarpinu þandi Prince raddböndin og söng eitt af sínum bestu 80´s slögurum, Little Red Corvette! Þetta fannst mér alveg stórmerkilegt ...
Aijt ...
þriðjudagur, ágúst 03, 2004
Gufudalur og ótengdur viðbjóðsviðbjóður!
Jæja, hvað syngur? Verslunarmannahelgin að baki og veturinn nálgast. Þetta er náttúrulega ekki hægt! Sumarið er eins og léttur skellur á rassinn. Fyrst kemur smá sviði og svo er allt búið. Það kemur og fer líkt og hendi sé veifað. Hvernig væri að taka þrjá vetrarmánuði og skella inn í sumarprogrammet og málið er dautt?? Er ekki hægt að leggja það fyrir hið almáttka Althinki?? Eða ekki ....
Þetta var fín helgi. Ég lagði Vesturlandið undir fót og skellti mér í veiði í Gufudalsá ásamt konu minni, foreldrum hennar og systur. Við gerðum góða veiði þar sem 70 sjóbleikjur lágu í valnum. Á leiðinni vestur stoppuðum við í Búðardal þar sem mín ástkæra systir er að vinna. Þvílíkt krummaskuð mar! Hún splæsdi á kallinn léttum banana- og súkkulaðisjeik áður en hún sparkaði mér öfugum út. Ég var víst byrjaður að láta sveitalubbana heyra það fyrir að láta þennan fordæmalausa redneckisma viðgangast á 21. öldinni. Neinei, eg var pollrólegur eins og alltaf. Pollrólegur á reyndar ekki við um sunnudagskvöldið en ég mun koma að því seinna. Já, þetta var massa ferð þar sem ég meðal annars veiddi, drakk beer, rauðvín og lét rasskella mig í Kana. Það mun ei koma fyrir aftur!
Á sunnudeginum um 17.oo leytið komum við í stórborgina. Í uppsiglingu var fyrsta fyllerí sumarsins og eftirvæntingin eftir því. Spennan lá í lofti og bjórinn beið þolinmóður í kælinum. Gunni kom í grenið um 2o.3o leytið og um leið var hafist handa við að vinna á veigunum á meðan Live hljómaði á fóninum. Í bland við bjórinn tókum við nokkur glös af Smirnov tjörueyði. Mjög svo hressandi til að byrja með en kallinn var ekki lengi í paradís því fljótlega fór að síga á ógæfuhliðina. Veruleg ölvun var farin að láta á sér kræla og þvoglumæltur kallinn var í þvílíku stuði. Planið var að hitta Vito og félaga í bænum og taka trúnó. Í leigubílnum á leiðinni í bæinn sagði ég hingað og ekki lengra. "Taxi driver, stop the fucking car, I have to gubba!" Ég stökk út og rúllaði yfir Hverfisgötuna og hlammaði mér á þrep fyrir utan dópbæli (kem að því eftir nokkrar). Ég leit í gaupnir mér og kúgaðist en ekkert kom. Innan skamms komu tveir gaurar út úr dópbælinu fyrir attan mig. Annar þeirra var ekkert að tvínóna við hlutina og bauð mér eitthvað til að hressa mig við. Ég frussaði: "No thanks" og hélt áfram að æla lofti. Stuttu seinna kom konan og systir hennar og drösluðu mér heim í grenið. Dagurinn eftir fór í verstu þynnku seinni ára með tilheyrandi hausverk og dolluferðum .. usssss! Láti mér þetta að kenningu verða...
Myndum mun ég henda inn vona bráðar!
Góðar stundir ...
Aijt ...
miðvikudagur, júlí 28, 2004
Versló nálgast óðum ...
... og allt að verða snælduvitlaust! Tjöld á feitum disskánti og sama má segja um svefnpoka og regnslár. Þeim sem ætla sér í tjaldferðir ættu að hafa regnhlífina í rassvasanum og helst að sleppa því að vera í underwear því það versta í heimi er að vera í blautum nærum, öss!
Ég persónulega ætla að leggja vesturlandið undir fót og veiða í Gufudalsánni góðu. Ég mun snúa aftur í siðmenninguna á sunnudag, hlusta á píkupopp, þamba öl og súpa burban. Það er kominn tími til að sleppa af sér beislinu og detta í pakkann með steikinni honum Bakkus. Þetta verður þétt skemmtun. Ég vona að Gilli og félagar fari sér ekki að voða í Eyjum. Hvað er annars planið kallar?? Drink until you drop. Verður það helgarmottóið? ;Þ
Akið varlega punk asses ....
Aijt ...
laugardagur, júlí 24, 2004
Bag of nuts ...
Það gerðist nokkuð fyndið í 11-11 í gærkvöldi. Ég var búinn að leigja Mystic River sem er by the way massa góð. Ég lagði leið mína í 11-11 til að versla Pringles til að gúffa yfir ræmunni. Gott og vel. Kallinn búinn að velja sér Pringles með beikonbragði og gengur að kassanum. Afgreiðslumaðurinn segir gott kvöld og straujar Pringles staukinn af fagmennsku. "Það gera 450 krónur". Segir hann svo. Ég ætlaði að renna niður rennilásnum á græna jakkanum mínum en fattaði þá eitt. Fokk, ég er ber að ofan innan undir jakkatuskunni! Eftir um 5 sek. ranka ég við mér þegar gaurinn segir hikandi: "Á ég að hjálpa þér að velja eða??" Þá stend ég með veskið í hönd og er að rétta gaurnum það. Gaurinn fer nett hjá sér og heldur sennilega að ég sé eitthvað nuts. Í fyrsta lagi ber að ofan innan undir jakkanum og svo réttandi honum veskið mitt eins og einhver steik. Þegar ég fattaði hvað ég var að gera tók ég nett hláturskast og henti í hann debetkortinu. Svo gekk ég út og hló alla leið heim. Það fékk svo á mig að fatta að ég væri ber að ofan innan undir jakkanum að allt fór á hvolf í kollinum.
Svona getur maður verið ruglaður stundum .. usss og svei!
Aijt ....
fimmtudagur, júlí 22, 2004
Hæ ...
Kellinn er risinn upp úr rotinu og hefur aldrei verið hressari. Er staddur í tölvunni hennar Kristínar og hef það bara helvíti gott! Upplausnin í tölvunni hennar er algjört súúúkkulaði. Letrið er svo yndislega smátt og það er ekki vottur af klunnaskap í neinu. Ég ætla að njóta þess að blogga í þetta skiptið :)
Ég var að ljúka við að senda umsókn upp í Síma. Ég sótti um starf þjónustufulltrúa í þjónustuveri. Ég ætla aðeins að hvíla mig á skólanum. Ég er einhvern veginn ekki að dansa í réttum takti við háfleyga tónlist HÍ. Áhuginn er bara ekki til staðar. Stjórnmálafræðin var svosem allt í lagi. Upp úr amstri háskólaára minna hefur stjórnmálaheimspekin, reikningshaldið og þjóð - og rekstarhagfræðin staðið upp úr. Upp úr erfiðinu hef ég hlotið 4 einingar!! Auðvitað hefur áhuginn verið í minna lagi og hefur því latt mig frekar en hvatt. Hvað getur maður sagt. Lífið er brekka, stútfull af hindrunum og allskonar óvæntum uppákomum. Trikkið er að strauja brekkuna og læra af mistökunum. Svo getur maður stoppað, snúið sér við og notið útsýnisins. Maður uppsker eins og maður sáir sagði einhver snillingurinn. Svo er svo sannarlega víst!
I have a dream .....
Stonedead!
Hvað er svekkelsi?? Að óvart skvetta vætu yfir óvatnsþéttan farsímann sinn með þeim afleiðingum að hann drepst í óákveðinn tíma. Á meðan reynir Eskimo Models að ná í mann og leggja inn nokkur skilaboð í talhólfið sem maður svo óheppilega hlustar á nokkrum dögum of seint. Andskotinn! Í undirbúningi, algjört Zoolander ævintýri og algjör bömmer að missa af því svo ekki sé talað um seðlana sem maður missir af. Hummm .. svekkelsi???
Já!!!!
Er samt ekki svekktur lengur (",)
Aijt ...
laugardagur, júlí 17, 2004
Grillveður ze death!
Þvílík blíða sem er úti maður! Ég og sá gamli tókum labbitúr um okkar fornfræga Austurvöll sem hefur staðið spakur frá upphafi Reykjavíkur. Við settumst fyrir utan Thorvaldsen og fengum okkur einn Pilsner. Fyrr er en varir vorum við feðgarnir orðnir stífir af kulda því við sátum í skugga og svo í ofanálag var pilsnerinn hlandvolgur! Við ákváðum að labba upp Laugaveginn og halda okkur í sólinni. Á endanum settumst við niður fyrir framan Sólon og fengum okkur kakó. Hitinn var í 25 gráðunum í logninu sem þar ríkti. Þar sátum við í góðar 45 mínútur og héldum svo aftur niður Laugaveginn. Þetta var gaman. Ég stefni á að fara aftur á morgun ef veðrið verður eins yndislegt og það var í dag.
Í gærkvöldi fór ég með Danann á Vegamót og kynnti hann fyrir íslenska maltinu. Hann var hrikalega sáttur og sérstaklega var hann sáttur með kvenpeninginn sem var á hverju strái. Hvað eftir annað missti maðurinn hökuna niður í golf og trúði vart sínum augum, þvílík var fegurðin. Um 1.oo leytið skutlaði ég honum heim í bælið áður en hormónin náðu algjöru valdi á viðkvæmu hugarástandi hans. Hvernig verður maðurinn með víni, ég bara spyr :o) Veðrið var rosalegt og mannfjöldinn í samræmi við það.
Hægt er að kíkja á myndir frá veiðiferð okkar félaga í Hítarvatn um daginn. Ég set link yfir á myndasíðu Gunna sem tók myndirnar. Njótið veðurblíðunnar kæra fólk ...
Aijt!
fimmtudagur, júlí 15, 2004
Yo ...
Hrikalega er maður upptekinn essa dagana. Það er varla að maður hafi tíma til að reima skóna og laga hárið. Það helsta í boltafréttum er að vinstri kálfinn hefur verið að angra mig. Smávægileg tognun býst ég við. Ég þurfti að yfirgefa völlinn í byrjun seinni hálfleiks móti Víking á þriðjudag. Það var synd því ég fann mig mjög vel í þessum leik. Næsti leikur er á sunnudag móti ÍBV á Laugardalsvelli. Nóg að gerast semsagt.
Á morgun byrja ég að þjóta um bæinn á silfurgráum Golf. Ef þið sjáið mig, flautið þá þrisvar. Ég mun reyna að múna til baka ef tími gefst ;) Það verður ljúft að losna úr gettóvinnunni .. waxing cars n´drinkin fortys. Bónið er orðið allverulega þreytt á kantinum.
Í gærkvöldi fór ég með Martin Beck (Dananum í liðinu okkar) í Smárabíó. Þar völdum við mynd með The Rock í aðalhlutverki. Hann slapp alveg ótrúlega vel frá sínu þrátt fyrir litla reynslu í bransanum. Myndin var líka nokkuð góð, kannski af því að við vorum ekki að búast við miklu. Hlömmuðum okkur bara niður og slöppuðum vel af, gúffuðum nachos wit cheese dip og þömbuðum Fanta. Þetta var alvöru quality time. Daninn vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið þegar hléið kom á myndinni. Það tíðkast víst ekki í DK að taka hlé í bíó. Hann skemmti sér konunglega kallinn og var hrifinn af íslenska Nóa Kroppnum. Við rúlluðum út úr bíónu, svo pakksaddir vorum við. Eftir bíóið kíkti ég á íbúð kappans. Hann býr í sömu íbúð og Ion Geolgau fyrrverandi þjálfari okkar bjó í. Ég fékk léttan hroll um líkamann þegar ég steig yfir dyrakarminn en það rjátlaði fljótt af mér enda Rúmeninn á bak og burt fyrir löngu síðan. Stuttu seinna skutlaði ég sjálfum mér heim eftir ágætis kvöld.
Læt heyra í mér seinna ...
Aijt ...
sunnudagur, júlí 11, 2004
Grillveislan Góða og The Royal Bastard ...
Í gær hitti ég marga góða menn. Til að byrja með fór ég ásamt Árdísi minni í grillveislu til Baldurs og Svölu kærustu hans. Þar stiknuðu lambalæri á teinum á stærsta gasgrilli sem ég hef augum mínum litið ... þvílíkt álskrímsli maður! Fjögur væn lambalæri voru fyrir á grillinu en auðveldlega hefði verið hægt að moka a.m.k. þremur í viðbót á skrímslið. Árdís greyið náði aldrei að borða því hún þurfti að fara á næturvakt upp á Landsspítala. Ég tók upp á að borða fyrir okkur bæði og hataði það sko ekki! Eitt læri var ætlað kallinum og engum öðrum ;) Eftir fínt kvöld í Álftamýri 63 var haldið áleiðis í bæinn. Það var mökkað í bænum og raðir á alla staði. Ég byrjaði á að standa í röð fyrir utan Vegamót í er virtist tímann endalausa! Eftir um 15 mín. kom strákur sem ég þekkti og benti mér á að detta í VIP röðina fyrir aftan sig. Ég þakkaði mínu sæla og tók stökkið í röð heldra fólksins. Þegar komið var að mér að fara inn setti útkastarinn hendina fyrir og stöðvaði kallinn. Bastarðurinn sem ég þóttist þekkja hvarf inn og gleymdi kallinum!! Mér leið eins og algjöru fífli og þurfti frá að víkja. Þá var mér litið á röð almúgans og þar hópaðist fólkið inn. Ef ég baaaara hefði sætt mig við stétt mína og staðið sem fastast í röð almúgans, þá hefði ég verið kominn inn í fyrradag. Ég mun læra af þessu, ójááá! Á endanum komst ég inn á Vegamót og var þar stutta stund. Eftir að hafa fundið bastarðinn og barið hann í drasl, lét ég mig hverfa yfir á Hverfisbarinn. Þar var riiiisa röð en einn eðalgæi sem ég man ekki hvað heitir (!!) reddaði mér inn. Það sem eftir lifði vappaði ég milli staða ásamt eðalgæjanum og Sölva Geir félaga mínum og datt svo heim í grenið og steinsofnaði á 3.oo tímanum. Ég henti inn myndum frá kvöldinu og einnig nokkrum eldri. Njótið vel.
Adjö.
Aijt ...
laugardagur, júlí 10, 2004
Körrrtrish! ...
Einn helvíti góður kaldhæðinn brandari bættist í bankann í dag. Brandarinn krefst þekkingar á endalokum ákveðins Bandaríkjaforseta. Þeir sem kveikja ekki geta óskað eftir skýringu í commentakerfi Egga (",) Skrítlan hljóðar svo:
*Apart from that Mrs. Lincoln, how did you like the play?*
Bwahahahahaha!
GrillsvaLL ...
Í kvöld er mér boðið í grillveisu til Bassa og Svölu. Gómsætt lambalæri verður á borðstólum auk veiga sem ég mun hafa í farteskinu. Það er nú alltaf gaman að fara til Bassa í teiti og því býst ég ekki við öðru en fínu kvöldi í massa kompaníi.
Eigið góða kvöldstund ...
Aijt ...
föstudagur, júlí 09, 2004
Næstum vika ...
Kæruleysi, kæruleysi og aftur kæruleysi. Var að detta úr skógarferð hugans þar sem bar að gæta ýmissa grasa. Ég rankaði við mér fyrir augnabliki og það fyrsta sem mér datt í hug var: *fokk, ég hef ekki bloggað í tæpa viku!* Nú er ég snúinn aftur tvíefldur. Hef verið að vinna mikið, æfa mikið og spila mikið. Gerðum jafntefli við Keflavík í gærkvöldi í fínum leik. Veðrið var ótrúlega gott og eeeenginn vindur .. getur það verið Spritz??? Það er alltaf vindur í Keflavík! Hvað er að gerast?? Við FRAMarar erum enn neðstir með 6 stig! Hef fulla trú á okkur og veit að betri tímar eru framundan.
Ég heyrði nokkuð fyndna brandara um daginn. Einn er á kaldhæðnu nótunum og hjóðar svo:
What type of wood can not float?
Natalie Wood .. Bwahahahaha!
Hinn hljómar svo:
Af hverju er Stevie Wonder alltaf brosandi?
Því hann veit ekki að hann er svartur. Bwahahahaha!
Shit, verð að fara aftur í vinnuna ...
Aijt ..
sunnudagur, júlí 04, 2004
Bush a nut ...
Ég viiiiissi að það væri algjör óreiða í toppstykkinu á Bush. Maðurinn er nutbag! A.m.k. fullyrðir bandarískur vísindamaður að Bush sé haldinn stórmennskubrjálæði og ofsóknaræði. Þetta eru sláandi fréttir ef þær reynast sannar. Allar vísbendingar benda a.m.k. til þess. Heimsleiðtoginn var víst alki fram að fertugu. Þá tók konan hann hreðjataki og sagði hingað og ekki lengra. Ástæðan fyrir ofsóknarbrjálæði Bush er talin stafa af því að hann fór aldrei í meðferð við alkóhólismanum. Fyrrverandi alkar eiga til að detta í paranoju þegar líða tekur á.
Fallega! Gaman að vita af nutbag í vestri með heilan her undir sér og bunch af langdrægum kjarnorkuflaugum ready to be launched at any time. Þetta er svakalegt. Þráhyggja hans af Guði er talin stafa af þessu stórmennskubrjálæði að hann sé hægri hönd Guðs í leit að hinu illa. Þetta er náttúrulega alveg svívirðilegt ef satt er en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Hítarvatn ...
Á föstudagskvöldið renndi ég vestur á land og var áfangastaðurinn Hítarvatn. Þar fyrir voru þrír heiðursmenn, þeir Gunni, Jommi og Maggi. Þeir höfðu hent upp sínu tjaldi og voru að slafra í sig risastórum hamborgurum þegar ég bar að garði. Eftir stutta stund var fagurruauða Og Vodadone tjaldið mitt komið upp. Næst var búslóðinni komið fyrir, forláta svefnpoki, sæng, koddar og dýna til að hrjóta á. Nestið vantaði ekki. Með í för voru þrír kexpakkar, pakkning með 6 Caramel súkkulaðistykkjum, tvær grænar powerade, þykkmjólk og 12 fernur af kókómjólk. Kallinn er nú þekktur fyrir annað en að fara matlaus í útileigur. Eftirfarandi setning er mér alltaf ofarlega í enni þegar útileiga er í undirbúningi: "Betra að hafa of mikið að gúffa en of lítið." Hver vill sitja uppi matarlaus einhversstaðar í afdölum! Við veiddum flestir nokkuð vel nema Maggi sem veiddi sama sem ekkert .. bwahahahaha. Þetta kemur vonandi næst Maggi minn. Þú ert bara ekki eins fær og við hinir. Því fyrr sem þú áttar þig á því, því fyrr sættiru þið við það kallinn .. aijt?? (",)
Þetta var fín ferð í fallegu landslagi. Ég stefni á að skella inn myndum sem Gunni smellti af í ferðinni.
Aijt ...
föstudagur, júlí 02, 2004
Vinna ...
Er í vinnunni og ákvað að henda inn nokkrum orðum. Nú er fyrsta helgin í júlí að detta inn og aaaallt að gerast! Eru einhverjir sem ætla í Þórsmörk??? Ljóst er að ég mun ekki fara neitt ... damn it! Konan er að vinna alla helgina og ég verð því vanræktur stórlega. Bikarleikurinn á mánudag gegn ÍBK kemur í veg fyrir drykkju veiga þessa helgi og því verða leiðindi allsráðandi. Hver veit, kannski að ég skelli mér bara í veiði. Ég ætla að stefna á að fara út á laugardagskvöldið, taka tvo kalda og halda snemma í bólið. Það er algjört möst á þessum tímapunkti að loosen up.
Nýji þjálfinn ...
Nýji þjálfarinn er fínn tappi og veit augljóslega margt um knattspyrnu. Ion Geolgau skreið heim til Rúmeníu með skottið milli lappanna en það var svo sem ekki við hann að sakast. Þetta var erfitt umhverfi fyrir kallinn að snúast í. Semsagt frasinn: "You stupid, I kill you" mun ekki heyrast oftar í Safamýrinni. Ég hef fulla trú á Ólafi Kristjáns, núverandi þjálfara. Hann mun draga FRAMvagninn í efri hluta deildarinnar. Ég er sannfærður um það.
Jæja, best að fara að vinna ...
Aijt ...
miðvikudagur, júní 30, 2004
Ghettoworkaholic ...
Ég mætti til vinnu á þriðjudag í þeirri fullvissu að ég væri að fara að sendast sem aðgerðarerkisendill Heklu hf. Staðreyndin var hinsvegar sú að sendillinn fer ekki í sumarfrí fyrr en 16 júlí. Þangað til var mér hent í bónið líkt og hverri annarri tusku. Þetta er aaaaalgjört gettódjobb. Bónandi bíla for the rich white folks! Vito, þú myndir ekki hata þessa vinnu you black bastard ...
Oxford scholar ...
Í dag var ég sendur til að sækja mann á réttingarverkstæði í K.Ó.P. og kom í ljós að þetta var Breti sem á íslenska konu og tvö börn. Svo kom annað skemmtilegra í ljós. Þetta var stjórmálafræðingur, útskrifaður frá Oxford háskóla í Bretlandi með stjórmálafræði, hagfræði og heimspekipróf. Við duttum í hrókasamræður um fjölmiðlafrumvarpið og forseta Íslands og vorum um flest sammála. Honum fannst fjölmiðlafrumvarpið reyndar aðeins of ýkt. Hann hefði frekað viljað sjá veldi Baugsmanna skert með því að minnka markaðshlutdeild þeirra á matvörumarkaði og þar af leiðandi auka samkeppni. Þannig gæti hinn almenni neytandi hagnsat vegna lækkandi matvöruverðs. Já, þetta var hress og skemmtilegur kall. Að lokum bauð hann mér með sér á ráðstefnu í London í haust þar sem mestu stjórnmálaspekingar seinni ára hittast og bera saman bækur. Þar á ég að stíga upp í pontu og fara með háfleyga tölu um stjórnarfar okkar Íslendinga og gera sérstaka grein fyrir gúmmíhlutverki íslenska forsetans. Þetta kom mér svo í opna skjöldu að ég missti stjórn á druslunni og velti yfir á öfugan vegarhelming þar sem hún endaði á þakinu. Bretinn lá í krampa og sagðist hlakka til að taka aðra bílferð með íslenskum stjórnmálamanni. Svo sagði hann orðrétt áður en hann missti meðvitund vegna blóðmissis:
"I sincerely hope that you politician cunts do not rule your country as horrificly as you manuveour a vehicle."
Aijt ..
mánudagur, júní 28, 2004
28 JúnÍ ...
Sólin er ótrúlega heit í dag. Ég sat úti smátíma í hádeginu og grillaðist á hvirflinum. Ósónlagið er óðum að eyðast og útfjólubláir geislar sólar eiga ekki erfitt með að ráðast á yfirborð jarðar. Geislar sólar eru víst skaðlegri hér á landi því loftið er svo tært. Ég mæli því eindregið með að fólk skelli á sig sólarvörn til að verjast krabbanum alræmda.
FRAM - FH á Laugardalsvelli í kvöld. Kallinn mun skarta nýju skónum sínum og verður þetta því sérstök stund. Eggert Stefánsson spilar í PUMA skóm í fyrsta sinn síðan í 5. flokki fyrir rúmum áratug síðan. Þið megið ekki missa af þeim merka atburði! Ég vona innilega að fólk láti sjá sig á vellinum. Sama hörmungin og á móti KA má ekki endurtaka sig þar sem tæpar 300 hræður dröttuðust á völlinn. Stuðningur er gífurlega mikilvægur ... mikilvægari fyrir leikmenn en flestir þykjast halda. Koma svo punk asses!!!
Aijt ...
laugardagur, júní 26, 2004
LoS PresidentE ...
Þá er ég búinn að kjósa í forsetakosningunum 2oo4. Það hefði nú verið óskandi að hafa úr fleirum að velja en ekki verður á allt kosið á þessum hnetti. Ég valdi ópólitískan tappa sem hefur ekki skapað glundroða í þjóðfélaginu og þar hafið þið það.
Kallinn á kosningavöku í kvöld???
... Nei takk!
Svíþjóð - Holland í EM???
... Já takk!
Grikkir sendu Frakka heim með skottið milli lappanna ....
Össssss!!
Update:
Vissuð þið þetta ....
... að fyrrverandi forstjóri og núverandi stjórnarformaður Norðurljósa Sigurður Guðjónsson var kosningastjóri Ólafs Ragnars þegar hann var fyrst kosinn forseti Íslands?? Fallegu tengslin milli Óla Gríss og Norðurljósa .. þetta er skandall!!
Aijt ...
fimmtudagur, júní 24, 2004
TundurSpillaR, MjólkurHristinguR og SáliN ...
Heil og sæl öllsömul. Ég var á ferð með Vito í Intersport þar sem hann var að velja sér gönguskó fyrir vinnuna. Fyrir tilviljun kom ég auga á hvítu tundurspillana sem ég ætlaði að fá mér en voru búnir á lager. Ég var ekki lengi að hugsa mig um og staðgreiddi græjurnar. Ég prufukeyrði skóna á æfingu í kvöld og var mjöög sáttur. Þessir skór munu færa mér titil í ár!
Englendingar duttu út úr EM eins og ég spáði. Portúgalir voru einfaldlega miiiiklu betri og verðskulduðu sigur að mínu mati. Portúgal var mitt lið frá upphafi og verður áfram út keppnina. Ég spái þeim EM titlinum enda með þvíííílíkt lið maður!
Ég tók afslöppun með Óla bróður í gærkvöldi. Við tókum rúnt í vesturbæjarísbúðina og skelltum okkur á sitthvorn mjólkurhristinginn. Sannkölluð bræðrastund. Svo gaf hann mér bókina -In Pursuit Of Excellence- sem er um aðferðir til að ná árangri með réttu hugarfari o.s.frv. Ég hlakka til að sökkva mér í þá bók því aldrei getur maður verið nógu sterkur andlega. Það má alltaf bæta við og lagfæra sálartetrið. Í minni íþrótt til dæmis, þá tel ég að andlegur þáttur sé 85% af frammistöðu í leik. Ef leikmaður er ekki rétt stemndur andlega, þá er hann ekki í stakk búinn og er þar af leiðandi ekki einbeittur. Afleiðingin er of hátt spennustig og mistök í hita leiksins.
Þetta er nóg í bili folks ...
Aijt ...
miðvikudagur, júní 23, 2004
Sed och Hört ...
Shit, bara opna í Séð og Heyrt um Þrífótafélagið. Ég lít út eins og milljón dollara stjarna sem fær allan heiðurinn en það er hlassfeitur misskilningur :) Vito Corleone (Victor) er stofnandi 3 fótafélagsins og skipulagði the whole shabang. Ég er bara einn af félögunum sem mynda þennan ágæta klúbb.
Ég get ekki beðið eftir næsta stjórnafundi ...
Svekkelsi ...
Puma skórnir hvítu eru búnir á lager hér heima og úti!! Djöfullinn. Ég var farinn að hlakka til að takka sprettinn í nýju tundurspillunum. Jæja, ég verð þá víst að velja aðra í staðinn.
Aijt ...
þriðjudagur, júní 22, 2004
Póker ...
Sylvester Stallone kemur með ágætis comeback í pókermyndinni Shade sem fjallar um svindl og pretti í heimi pókersins. Þarna er á ferð ágætis mynd sem fólk ætti að hafa í huga þegar næst á að taka spólu. Ekkert fansí pansí, heldur traust mynd með afbragðsleikurum. Það minnir mann á það, helvíti er langt síðan maður spilaði póker! Spurning um að taka pókerkvöld á næstu skemmtun Þrífótafélagsins ... Maður gerði nú góða hluti hérna í denn. Heima lá á glámbekk forláta askja með pókerpeningum og öllum pakkanum. Eitthvað sem afi gamli hafði skilið eeftir sig. Við krakkagemlingarnir vorum ekki lengi að slá eign okkar á apparatið og byrjuðum að veðja tugum ef ekki hundruðum þúsunda. Nei nei nei, alveg róleg. Engar beinharðar upphæðir voru í gangi heldur aðeins koparpeningar sem fylgdu pókeröskjunni hans afa heitins. Þetta var samt massa fjör og þvílík spenna í gangi man ég. Spurning um að skella sér í pro pokergame í Atlantic City og leggja vel undir?? Nei, ég held maður láti sér koparpeningana nægja í bili.
Tan ...
Úti er heiðskýrt og allt stefnir í heitan dag líkt og í gær. Það er engin spurning hvað gert verður. Sólbað all day lang og ekkert vesen. Það er kominn tími til að sanna fyrir sjálfum sér að maður geti legið lengur en hálftíma án þess að deyja úr leiðindum eða kulda. Svo er líka fínt að bæta allround tanið aðeins. Maður slær ekki hendi móti smá súkkulaðilit, það er af og frá!
Svo byrja ég að vinna eftir viku og get ég ekki beðið. Þetta hangs er orðið full langdregið. Ég verð erkisendill fyrir skrifstofu Heklu hf. og verður eflaust nóg fyrir kallinn að gera. Ekki amalegt að rúnta um stórborgina í splunkunýjum Golf og taka púlsinn á liðinu í umferðinni. Þetta verður ljúft.
Jæja, ég ætla nú að skella mér upp í PUMA umboð og tjekka á nýjum takkaskóm sem ég er að spá í. Hvítir með rauðu PUMA merki on the side ... usss! Maður verður vígalegur í þeim pakka.
Hvora tegundina ætti ég nú að velja ... skó 1 eða skó 2??
Aijt ...
sunnudagur, júní 20, 2004
26 ára babe ...
Vil óska minni ástkæru og myndarlegu systur til hamingju með 26 ára afmælið. Hún er stödd á Ítalíu og stundar þar nám við ítalskan listaháskóla í grafískri hönnun. Hún kemur heim í júlí og tekur púlsinn á djamminu í stórborginni. Til hamingju Stebba mín! (",)
Aijt ...
föstudagur, júní 18, 2004
Piparsveinn dauðans ...
Töpuðum ótrúúúúlega óverðskuldað fyrir KA mönnum á heimavelli í fyrradag. Við lágum í sókn frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og sköpuðum okkur ógrynni færa til að klára leikinn en allt kom fyrir ekki. Í síðari hálfleik skora þeir úr langskoti af 30 metra færi! Okkur var ekki ætlað að skora í þessum leik. Gott og vel. Þá er komið að sumum mönnum sem kalla sig stuðningsmenn þessa liðs en geta aldrei séð sóma sinn í að ríghalda kjafti í stað þess að hrauna yfir liðið. Í gær yfirspiluðum við andstæðingana og áttum skilið að vinna en samt fengum við hraunun á FRAMspjallinu: .. "þeir geta ekkert" ... "skelfileg frammistaða" ... "til skammar" o.s.frv.
Það var algjör "unun" að ganga inn á leikvöllinn rétt áður en leikurinn hófst. Þetta var líkt og í jarðaför, þvílík var stemningin. Svo voru um 300 hræður á leiknum og ekki heyrðist eeeitt hvatningaróp allan helvítis leikinn. Það bergmálaði í Laugardalnum. Það eina sem maður heyrði var á neikvæðu nótunum og aðeins til niðurrifs. Svona stuðningur er til skammar og ég skammast mín fyrir að vera FRAMari með svona kveifur á bak við mig. Ég vil taka það skýrt fram, að ég er alls ekki að alhæfa um alla stuðningsmenn FRAM, þvert á móti heldur þá sem eru sífellt með hausinn upp í rassgatinu og hafa aaaaldrei getað rassgat í íþróttum sjálfir, deyjandi úr minnimáttarkennd líkt og einn tappinn sem er alveg sorglegur greyið. Ekki fyrir langa löngu beindi hann spjótum sínum að okkur varnarmönnunum og hraunaði yfir okkur með óréttmætri gagnrýni! Fallegi piparsveinninn! Þessi gaur hefur aaaaldrei i livet verið kenndur við kvenmann enda ekki skrítið. Maðurinn lítur út eins og hellisbúi og talar ekki um annað en fótbolta. Svo lætur hann gremjuna bitna á okkur leikmönnum FRAM því hann fær aldrei og mun aldrei fá á broddinn nema kannski í örkinni hans Nóa. FRAM hefur ekkert með svona fýlupúka að gera ... óneiiii cuz.
Hei hó jibbíjei og jibbííjei ...
... það er kominn 17 júní. Reyndar er hann liðinn og ekkert við því að gera. Í dag er 18 júní og allt gott um það að segja enda var þetta fínn dagur. Fór kallinn að veiða .. getur það veeeerið??? Já, ég fór fyrst í sumarbústað með Árdísi og tók afslöppun. Við matreiddum humar og höfðum það vooooða nice á kvöldi sautjándans. Yfir daginn hnýtti ég flugur og Árdís flatmagaði í sólbaði. Veðrið var rosalega gott og fínn hiti enda vorum við skötuhjúin léttklædd með eindæmum. Ég tók nokkrar myndir og henti þeim í myndapakkann.
Á Þingvöllum í morgunn veiddi ég aðeins einn vænan fisk og svo um 400 ógeðsmurtur. Þær eru á í hverju kasti þessar murtur, alveg hreint óþolandi. Maður vonast alltaf eftir 12 kílóa urriða eða vænni kuðungableikju en í staðinn fær maður endalaust af 150 gramma murtum! Ojjjjj ...
Ohh, það er svo gaman að kasta flugu!
Aijt ...
miðvikudagur, júní 16, 2004
Fahrenheit 9/11 ...
Var að lesa skemmtilega grein áðan. Svo er mál með vexti að bandaríska kvikmyndaeftirlitið hefur bannað nýjustu mynd Michaels Moore, Fahrenheit 9/11 innan 17 ára vegna ofbeldisfullra atriða. Sú mynd er eins og flestir vita hörð ádeila á Bush og herferð hans gegn hryðjuverkum. Leikstjórinn Moore var ekki sáttur og sagði líklegt að 15 til 16 ára unglingar yrðu fljótlega kvaddir í herinn til að berjast í Írak. Af hverju mættu þá ekki 17 ára unglingar sjá heimildarmynd sem m.a. fjallar um stríðið í Írak!
Ég skil frustrasjón hans Moores fyllilega ....
Þessir Kanar maður .. jesuuuus!
Aijt ...
þriðjudagur, júní 15, 2004
Kveldið ...
Var að enda við að sporðrenna tveimur ísblómum .. uggh. Maginn er útþaninn og ælan er komin upp í háls. Svo var mjög gáfulegt að leggjast upp í ból um 19.oo leytið. Ég steinsofnaði og vaknaði með andfælum kl. 22.oo! Nú mun ég ekki getað sofnað í kveld og stórleikur á morgun! Jesus ...
Keflavík tapaði 0-4 í Eyjum sem er mjög gott en Fylkir stungu af á toppnum eftir sigur á Víkingum 2-1. Þeir eru því með 14 stig eftir 6 leiki. Við verum með 5 stig eftir 5 leiki en getum farið upp í 8 stig með sigri á KA á heimavelli á morgun. Við þurfum því á miklum stuðningi að halda í Laugardalnum!! Litum dalinn bláan og öskrum ÁFRAM FRAMARAR!
Rakst á Jón bróður á MSN áðan ... það var ljúft (",)
Góða nótt spaðar ...
Aijt.
sunnudagur, júní 13, 2004
ReunioN ...
Í gærkvöldi fór ég ásamt Árdísi minni í reunionteiti hjá jafnöldrum hennar úr Foldaskólanum. Gleðin var haldin í Siglingaskólanum við Reykjavíkurhöfn þar sem Akraborgin gamla lagðist alltaf að bryggju. Fyrir utan staðinn blasti svo við manni "stolt" okkar Íslendinga, Landhelgisgæslan sem er líkari trillu heldur en varðskipi!
Inni á staðnum var stanslaus gleði hjá blúsuðu fólki sem var óðum að komast í trúnógírinn. Ég og Árdís, vopnuð forláta digital myndavél og sólheimabrosi mættum seint á hafnarbakkann. Ég þekkti þar tvo unga heiðursmenn þá Andra Stein sem er með mér í FRAM og svo Jomma sem er yngri bróðir Haugsins. Hér eru nokkrar myndir úr gleðinni.
In The Cut ...
Eftir einn og hálfan tíma á hafnarbakkanum létum við okkur hverfa og fórum í næstu vídeóleigu og leigðum In The Cut með Meg Ryan í aðalhlutverki. Sú mynd er djörf! Meg Ryan er buttnaked í myndinni plús að tvisvar sést besefi í beinni. Það gerist nú ekki oft í Hollywood ræmu. Þetta var ágætis mynd en nær ekki á topp 10 listann minn.
FönDur ...
Nú ætla ég að fara að hnýta flugur fyrir næstu veiðiferð. Það má vel vera að ég skelli mér á vesturlandið í vikunni og taki Hítavarvatnið gamla góða. Þar hef ég nú oft gert góða veiði en langt er orðið síðan.
Aijt ...
laugardagur, júní 12, 2004
EM ..
.. byrjar með látum svo vægt sé til orða tekið. Enginn bjóst við sigri Grikkja móti heimamönnum í Portúgal í opnunarleik mótsins en hið óvænta gerðist. Antilópan sigraði ljónið og allt varð vitlaust. Ég get ekki ímyndað mér pressuna sem var á leikmönnum og þjálfara Portúgal, úff. Svo skil ég ekki þá ákvörðun Scolaris að láta ekki Ronaldo byrja inn á! Næsti leikur er Spánn - Rússland og verður það vafalaust mögnuð skemmtun.
Visa bikar ...
Við tókum Gróttumenn í karphúsið í afburða lélegum leik í gærkvöld. Við unnum 0-4 og ekkert meira um það að segja. Eftir leikinn gat ég ekki hugsað mér að fara að sofa og skellti mér því á uppáhaldsstað minn, Þingvelli. Þangað var ég kominn um 24.oo en heim aftur um 6.oo leytið. Veðrið var magnifico og nóg af fiski en í smærri kantinum.
Var að heyra þennan ...
Davíð Odds er búinn að láta saga af sér báða baugfingurna og fer ekki lengur út á kvöldin að vetrarlagi því hann þolir ekki að horfa á norðurljósin og svo er hann hættur að fara seint að sofa til að fá ekki bauga undir augun.
Mehehehe (",)
Aijt ...
föstudagur, júní 11, 2004
EggBoard ...
Var að henda inn skilaboðaskjóðu sem kallast EggBoard sem er fljótleg og þægileg í notkun. Bara að henda inn nafni og tölvupóstfangi og leggja orð í belg í skjóðuna. Hægt er að sjá kóða yfir broskalla ef smellt er á broskallinn fyrir aftan "skilaboð" ... Þetta er snilldin ein! Æi já, eitt að lokum. Ekki er hægt að nota íslenska stafi og er það algjör bömmer but what can one do??
Eggi kveður að sinni ...
Aijt ...
fimmtudagur, júní 10, 2004
Ekkert Allround Tan ...
Er mjög sáttur með veðrið sem er í gangi á klakanum þessa dagana. Eintóm blíða og fínn hiti. Ég er kominn með fínt facetan en þarf að vinna í restinni af búknum. Sérstaklega varð ég brúnn af því að standa við Þingvallavatnið og fá endurkastið í andlitið af vatninu. Ég er eins og Jói albínói á öðrum stöðum líkamans. Reyndar skellti ég mér út í sólbað í dag en það var aðeins í stutta stund. Jón Síbóner bróðir hélt að hann væri á leið út til Dallas í 35 stig og skýlausan himinn en nei nei. Í Dallas var beljandi rigning og gekk á með stormi takk fyrir. Reyndar var molluhiti og allt gott um það að segja.
ÞrífótaFélagið í Séð og Heyrt ...
Í næsta tölublaði Séð og Heyrt mun koma grein um litboltaævintýri okkar í Þrífótafélaginu. Ljósmyndari kom og tók myndir af okkur í stríðsgöllunum. Ég hef ekki hugmynd hver hringdi í þá og lét vita um atburðinn. Sennilega Vito Corleone Mad Daddy Hustla. Þetta er bara klassi enda ekki á hverjum degi sem maður birtist í þeim snepli. Kominn tími á að vera "settur á stall" með gæjum eins og Fjölni Þorgeirs og Frikka Weiss .. össsss! Nei, ég er sáttur við að vera nobody .. all good, all good (",)
FRAM vs. Grótta ...
Annað kvöld kl. 19.15 mætum við FRAMarar svo Gróttu í bikarkeppninni. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta útsláttarkeppni og það lið sem tapar dettur úr keppni og verður ekki meira með, bömmer. Við verðum semsagt að vinna og á ég von á hörkuleik þar sem ekkert verður gefið eftir a.m.k. ekki hér á bæjum.
Aijt ...
miðvikudagur, júní 09, 2004
Afslöppun ...
Gist var í Þrastarskógi í nótt. Reyndar svaf ég aðeins í þrjár stundir því seint lagðist ég í rekkju og eldsnemma fór ég á lappir. Það var hrikalega ljúft að vakna kl. 4.3o við hressan fuglasöng og sólargeisla sem tróðu sér milli gardínanna. Veður var milt og léttskýjað. Hugurinn stefndi í þjóðgarð Þingavalla sem að mínu mati er fegursti staður landsins og dýrmæt þjóðargersemi. Ég var byrjaður að sveifla stönginni um 6.oo leytið og brátt var fyrsta bleikjan komin á land og var hún sú stærsta þennan dag. Á eftir fylgdu nokkrar bleikjur og fullt af viðbjóðsmurtu. Fáeinar myndir úr veiðitúrnum eru hér.
Eftir veiðina gekk ég aftur að bílnum um ótroðnar slóðir. Minnstu munaði að kallinn yrði úti af hita og þreytu, þvílík var hitamollan. Næst mun ég fara troðnar slóðir þar sem enginn mosi er ... úff. Þetta var eins og að labba á dýnu í 20 stiga hita í alklæðnaði frá hvirfli til ilja. Fallegi göngutúrinn endalausi! Svo gat ég eeeekkert á æfingunni í kvöld því öll orkan og varaorkan fór í viðbjóðsgöngutúrinn.
Ég keyrði aftur að bústaðnum og skellti mér í sólbað ásamt spúsu minni. Það stóð ekki lengi því skyndilega var dregið fyrir sólu og hrollur fór um félagann. Stuttu seinna héldum við í höfuðborgina enda æfing um kvöldið.
Í heildina litið massa veiðiferð (",)
Aijt ...
Seinleiki ...
Uppfæri seinna í kvöld. Var að hendast úr sveitinni og er að verða seinn á practice!! Over and out of here! (",)
Aijt ...
mánudagur, júní 07, 2004
OpnunarSvall ÞrífótaFélagsins (3) ...
Já, þetta var mögnuð helgi. Á laugardag byrjuðum við klíkan á paintball vellinum í K.Ó.P. Allir mættu hressir og fengum við í hendur fallega, græna boli með klúbblógóinu framan á þar sem stóð skýrum stöfum: 3 fótafélagið. Við stóðum á malarplaninu fyrir utan, drukkum fortys og skiptumst á bröndurum. Skyndilega heyrðum við miklar drunur og mikill rykmökkur þyrlaðist upp af þurrum malarveginum. Klíkan leit til suðurs og sá þá hvar nokkrir bílar komu með stuttu millibili og lögðu á bílastæðinu fyrir ofan. Út úr bílunum stigu vígalegir og burstaklipptir tappar, sumir í hermannabuxum og hermannaskóm! Við í klíkunni litum hver á annan og hugsuðum hvað í andskotanum væri í gangi. Átti að fara að slátra okkur af US State Troopers eða hvað!? Gott og vel. Seinna kom í ljós að áhyggjur okkar voru á rökum reistar. Þetta voru bandarískir hermenn í leit að saklausum Íslendingum til að skjóta í drasl. Sumir fóru að ókyrrast við tíðindin og þá sérstaklega Stones (Steinar Kaldal) sem fór með bænir (",) Þessir gaurar voru gráir fyrir járnum. Við erum að tala um það, að sumir komu með sérkeyptar paintballuziguns! Þeir komu með nokkra kassa af skotum og einnig paintball grenades, ekki alveg en næstum því samt (",) Okkur klíkunni leið eins og lömbum á leið til slátrunar eins og Hrottinn (Óli Ægis) mælti svo skemmtilega, með þynnkuskítinn í brókunum. Í upphitunarleikjunum fengum við að vera með Könunum í liði og fengum góð ráð frá Rambo wannabees. Skipst var á skotum og sumir hverjir dritaðir í sameindir. Í lokaleiknum var komið að uppgjörinu. Icelandic Tripodassocitation vs. US Navy Seals. Þeir rústuðu okkur þótt við værum mun fleiri enda sérþjálfaðar killingmachines. Paintballið var á enda og allir í Þrífótafélaginu hrikalega sáttir.
GriLL og DownTown ...
Næst á planinu var að mæta til Róna Temjarans (Daða Jörgensen) í grillsvall. Ég og Jón mættum allt of seint en okkur var fyrirgefið af tryggum Þrífótafélögum. Að sjálfsögðu mættum við í bolunum og vorum í þeim allt kvöldið og í bænum. Þetta var týpískt karlakvöld. Eðalklámspóla var látin ganga allt kvöldið og drykkjuleikir spilaðir undir Rapp og R&B tónum. Ég var að sjálfsögðu á rólegu nótunum enda æfing morguninn eftir. Eftir ljúft kvöld í Vesturbænum héldum við á tveimur jafnfljótum downtown þar sem glaumurinn og gleðin beið okkar í góða veðrinu. Klíkan hélt rakleiðis á Vegamót þar sem stoppað var stutt við. Næst var haldið á Hverfispöbbinn þar sem tekin voru nokkur danspor milli þess sem öl var drukkið og brennivín staupað. Eftir ágætis veislu á Hverfis duttum við niður á Prik sem var stappað að venju. Ég veit ekki hvað gerðist eftir það því ég þurfti að skella mér heim í bólið. Það var um 3.00 leytið. Hinir félagar Þrífótafélagsins dóu hægt og rólega út vegna ölddrykkju eða lögðust í rekkju með fögrum meyjum. Í heildina litið snilldar kvöld. Eitt af mörgum í framtíðinni (",)
Við tókum slatta af myndum og má líta þær hér undir Þrífótafélagið 1 og 2.
Í töluðum orðum er Jón að undirbúa brottför sína til Dallas en hann mun snúa aftur í lok júlí.
Í kvöld mætum við FRAMarar Fylki á Laugardalsvelli í hörkuleik. Sigur er það eina sem kemur til greina hjá FRAM til að bæta upp fyrir slakt gengi að undanförnu. Koma svo!!!!
Góðar stundir!
Aijt ...
föstudagur, júní 04, 2004
ÞFF a.k.a Þrífótafélagið stofnað ...
Stofnaður hefur verið karlaklúbbur undir forystu Mad Daddy Hustla (Vito Corleone a.k.a. Victor) sem samanstendur af röppurum og gangstörum úr undirheimum stórborgarinnar. Markmið klúbbsins eru skýr þ.e. að mynda feita klíku sem kemur saman, drekkur beer og stundar drive by´s. Þess á milli verður trúnópakkinn tekinn þ.e.a.s. ef ze gangstas n´rappas eru enn á lífi.
Dagskráin, samin af Mad Daddy hefst í fyrramálið kl. 1145 hours á litboltavellinu í gettóinu K.Ó.P. þar sem klíkurnar munu kljást ....
1. Paintball:
• Skilið eftir yo caps, uzi´s and pieces dat means don´t be packin´no heat fool! We´re all on probation and da man is lookin for us. Við fáum hins vegar hardcore semi-automatic litbolta ( nei s-luv það er ekki hægt að fá í bleiku) skammbyssur sem hvaða crack tottandi 30 cm drjóla svertingi yrði stoltur af.
• Það kostar 2.900 fyrir start gjaldið en svo kaupi flestir 200-300 skot í viðbot og 100 skot=990 kr.. Þannig að reiknið með 6000 kr. í paintball. Ekki vera cheap þvi þetta er þess virði. Það er hvenær sem er hægt að detta bara í það og drepast en svona tækifæri koma einu sinni á ævi.
• Við fáum galla en ágætt er að koma í góðum skóm og með góða skapið. Verið tilbúnir að svitna mikið og skemmta ykkur enn meira!
• Einnig er SKYLDA að mæta á paintball völlin með 1 forty. 40 oz. Mjög stór bjór sem sést oft í blökkumanna bíómyndum
• Það verður lítið hlé gert svo við getum drukkuð 1 forty og rætt stragedíur. Annað hvort verðum við allir saman í liði á móti einhverjum punk ass whiteboys eða okkur verður skipt í 2 klíkur þar sem barist verður um stolt og yfirráðasvæði.
• Vegna þess að þið eruð gleymskir BASTARDS og einhverjir eigið eftir að gleyma að koma með einn 40 oz. því verður gripið til þess ráðs að viðkomandi verði refsaður með að verða skotinn með paintball byssu af hæfilegu fjarlægi sem ákvarðast síðar!
• Svo hefur fyrirtækið sem er með þetta dæmi boðist svo rausnarlega til að taka þetta allt saman upp á kameru sem við horfum svo á um kvöldið og hlægjum okkur máttlausa!! Ef einhver supply-ar vélina. Þeir eru vanir að gera þetta þ.a. þeir kunna að umgangast dýrar og viðkvæmar upptöku-græjur/digital vélar.
(Athugasemd : Gangsta egg-head biður um að hann verði ekki skotinn in da face)
2. Grill:
• Einhver sem er ekki á féló þarf að halda smá grill partí á stað sem the man er ekki að fökka í okkur. Legg í til að það verði haldið í hvítumanna hverfi, ekki í da K.Ó.P eða west-side þar sem hætta er á drive-byes. (Hverfi S-luvs, EggHeadz/Horndawg yrðu tilvalin)
• Leggjum allir saman í smá púkk og einhverjir fara fyrir hönd okkar allra og kaupi grill kjöt etc. ekkert kerlinga shiiznit.
• Í grillinu verður e-ð um gangsta games (domino muthafucka, craps, beer bong sem er reyndar white boy sport en ekki er allt vont sem kemur frá “whitey”
3. Downtown:
• verður ákv. í partíinu hvert við förum! En æskilegt er að við höldum klíkunni!
Þetta verður snilldzzzzz!
Aijt gangstas, lets pack our uzi´s!
fimmtudagur, júní 03, 2004
Óli grís?
Þjóðaratkvæðagreiðsla!!! Hvaða bull er þetta eiginlega?? Eitt er ljóst að hann er eiiiiiinungis að sleikja upp rassgöt til að verða endurkjörinn í dúkkulísuembættið í sumar. Nú er spurning hvað okkar dásamlega þjóð gerir. Ætli Baugsmenn standi ekki fyrir áróðri í blöðunum sínum og púi niður fjölmiðlafrumvarpið til að fólk sem veit ekki betur myndi sýnar skoðanir eftir því. Þetta er hneisa og ekkert annað! Af hverju er ekki beinu lýðræði komið á fyrst að fulltrúum vorum er ekki treyst fyrir málefnum líðandi stundar!!! Hvað er í gangi hérna!!
Aijt!!
miðvikudagur, júní 02, 2004
þriðjudagur, júní 01, 2004
Gameday!!
Mætum galvöskum Grindjánum í Grindavík kl. 19.15. Leikurinn verður harður, hann verður grófur, hann verður skemmtilegur. Ég stefni á að setja mark í þessum leik og það verður í fallegri kantinum. Ef það tekst þá mun ég birta múnmynd af sjálfum mér ... u better believe it!
Brothazz ...
Á morgun munum við eðalbræður halda í bústað og losna frá umheiminum. Þar verður grillað, þar verður gúffað, þar verður skemmtilegt! Á fimmtudeginum ætla ég svo að kenna honum töfratökin í fluguveiðinni. Hann verður ekki samur eftir þá kennslustund. Út með tjellingarnar og inn með veiðibakteríuna. Síbónerinn mun víkja fyrir síveiðaranum. Það verða teknar myndir af þeim sögulega atburði ....
Gamla Brooklyn NY?
Hryllilegt þetta morð í Vesturbænum. Þetta er farið að verða eins og í Brooklyn, NY í denn með tilheyrandi bankrobbery´s, murders n´ drugabuse ... Hvernig er klakinn að verða eiginlega. Sá spyr sem ekki veit. Spurning um að lögleiða byssueign?? Inúúú ...
Aijt ...
mánudagur, maí 31, 2004
laugardagur, maí 29, 2004
Yo yo ...
Gaman að essu ... Kl. er að ganga 19.oo og kallinn að drattast á fætur ... shiiiiiit! Ég hef reyndar löglega afsökun. Ég vaknaði 5.oo í morgunn og fór að veiða. Milli þess að veiða í 6 tíma þá gekk ég rösklega milli veiðistaða og tók það veeeerulega á, sérstaklega í ljósi þess að ég var í vöðlum og klæddur eins og eskimói á gaddfreðnu eyðilandi! Veðrið var til fyrirmyndar í etta skiptið, lítill sem enginn vindur og hitamolla sem gerði gönguna erfiðari en ella. Aflinn lét á sér standa og aðeins eitt kvikindi sporðrenndi flugunni minni. Kvikindið var í minna lagi og því gaf ég því líf til þess eins að fá að gúffa í sig meira af æti og verða að fitubollu. Eftir veiðina brunaði ég attur í höfðuðborgina og skellti mér undir felld. Það mun hafa verið um 14.oo stundina. Ég grjótsofnaði eins og rotta og vaknaði ekki fyrr en 4 tímum seinna. Djöfull var þetta ljúfur lúr ..ohh! Ég er að spá í að detta í WC og worka bís og abs en ég nenni því tæpast. Ég sé til á ettir þegar ég hef losnað við "morgunbónerinn" ...
Uppdate:
Gleymdi að óska Arnari frænda opinberlega fyrir að útskrifast frá MS þaðan sem margir sannir heiðursmenn hafa gengið hnarreistir með stolti t.d. undirritaður.
Hér eru fáeinar myndir úr stúdentagleðinni .. ég stoppaði stutt við og það skýrir myndaþurrðina úr svallinu ...
Aijt ...
fimmtudagur, maí 27, 2004
Leiðindi ...
Er ekki að gera rassgat og leiðist alveg pínlega. Ég get ekki beðið eftir að geta byrjað að vinna en það verður víst ekki fyrr en í júní. Hvað er annars hægt að gera í svona viðbjóðslegu veðri?? Rigning og rok kemur manni ekki í gott skap. Maður getur ekki farið í sund. Maður getur ekki unnið í brúnkunni in da back yard og það kemur ekki til greina að stunda útiveru. Þessu veðri er spáð a.m.k. fram á næsta þriðjudag. Ég sem stefndi á aðra veiðiferð sumarsins á föstudag. Ég fer samt! Það var sól og sumarylur seinast þegar ég fór og ég veiddi ekki neitt. Kannski að rokið og rigningin geri gæfumuninn.
Hraunun ...
Blöðin hata ekki að rífa okkur FRAMara í sig án vægðar né umburðarlyndis. Þegar við spilum illa þá er það af því að við erum svo ógeðslega lélegir og eigum ekkert betra skilið og þegar við druslumst til að spila vel og vinna þá er það vegna þess að hitt liðið átti svo hrikalega lélegan dag. Það er mjög sjaldan sem við FRAMarar fáum réttmæta gagnrýni sem stenst að flestu leyti í blöðunum og þá sérstaklega í viðbjóðsdabbanum. Þetta er óþolandi...
Oooooh!
Þar sem ég er í svo neikvæðu skapi ætla ég mér ekki að staldra við og hætta að kvarta. Annað sem er alveg viðurstyggilega pirrandi er hve lengi þessir kennarar eru að fara yfir prófin. Það er miðað við eftir stöðluðu kerfi að kennarar séu ekki lengur en tvær vikur eftir próflok að fara yfir draslið en það stenst aaaaaaldrei! Þetta er ekki nokkrum manni bjóðandi ....
Aijt complainers ...
miðvikudagur, maí 26, 2004
Myndir ...
Ég skellti inn nokkrum myndum úr maí mánuði plús myndum kringum FRAM - ÍA leikinn í gærkveldi ...
Lifið heil.
Aijt ...
Tap ...
Töpuðum leiknum í gær 0-2. Bæði mörkin komu úr föstum leikatriðum (hornspyrnum) en það verður bara að hafa það. Við FRAMarar vorum drullulélegir og áttum þetta skilið. Ljóst er að við verðum að rífa okkur upp á rassgatinu og gera betur móti Grindavík eftir tæpa viku. Þetta er náttúrulega ekki hægt ...
Ég er leiður ...
Aijt ...
Bongó ...
... blíða og allt að verða vitlaust í höfuðborginni!
Þá kemur spurningin: "hver er maðurinn?"
Hann er ljóshærður. Hann er með eindæmum fallegur. Hann hefur base tan sem kallarnir.is væru stoltir af. Hann er helköttaður og er með rosalega bísa. Maðurinn er svalari en alkul og hefur leikið kyntröll í ófáum bíóræmum. Já, þetta er Akkíles sjálfur, in da flesh. Brad Pitt, fallegasti maður heims. Eini maðurinn í veröldinni sem gæti snúið mér á stundinni! (".)
TROY!
Þessi mynd er náttúrulega bara mígandi snilld og stórvirki frá upphafi til enda! Hún er nokkuð corny á köflum en það kemur ekki að sök því myndin er meistaraverk. Brad Pitt er ómótstæðilegur í hlutverki hermaskínunnar óstöðvandi, Akkílesar og Eric Bana er hrikalega svalur í hlutverki Hectors. Orlando Bloom er óþolandi væminn og strákalegur. Fór í mínar fínustu frá upphafi til enda. Þeir sem ekki þekkja til Tróju stríðsins og hetja þess eiga von á svaka thriller. Margt kemur á óvart sem einkennir yfirleitt ekki Hollywood klisjumyndir. Þetta er úrvalsmynd sem menn veeeeerða að sjá í bíó, helst lúxussal .. oh yes!
Þingvalla ...
Ég skrapp á Þingvelli kl. 4.00 í morgun ásamt Árdísi skvís og tók veiði. Reyndar veiddi ég ekki bröndu þá sex tíma sem ég stóð í vatninu enda nokkuð kalt í veðri og lítið af flugu á sveimi. Veðrið var hinsvegar gullfallegt, sólskin og blankalogn að hætti hússins. Ég tók nokkrar myndir sem ég mun henda inn von bráðar. Eftir veiðiferðina fór ég og keypti mér hitabuxur, svo fór ég og lét pússa hálsmenið mitt, svo henti ég bílnum í þvott og margt fleira.
FRAM - ÍA ...
Á morgun mætum við bláir svo Skagamönnum á Laugardalsvelli kl. 20.00. Ég vona að allir sjái sér fært að mæta og hvetja!
Aijt ...
laugardagur, maí 22, 2004
Fallega!
Við lögðum af stað upp í bústað í skelfilegu veðri og héldum í vonina um að veðrið myndi nú batna þegar liði á nóttina. Við lögðumst til svefns og allt í góðu með það. Svo vakna ég við vekjaraklukkuna kl. 5.00 stífur í hálsinum af spenningi að skella mér í veiðigallann og bruna að vatninu. Nei nei, veðrið hafði færst í aukana síðan um miðnættið og var orðið snælduvitlaust með tilheyrandi grenjandi viðbjóðsrigningu og hívandi roki. Ég gat þar af leiðandi kvatt þessa veiðiferð og farið aftur að sofa, djöfull var ég pirraður. Við sváfum til 11.00 og brunuðum svo aftur í bæinn. Nú er orðið kristalljóst að það er eeeekkert að marka hvað þessir veðurspekingar hafa að segja. Þeir spáðu reyndar rigningu en það stóð ekkert um 50 m/s!!!
Ég kveð í fúlu skapi ...
Aijt ...
föstudagur, maí 21, 2004
Bústaður ...
Þá er það ákveðið. Haldið verður upp í Þrastarskóg í kveld þar sem bústaðurinn mun taka okkur opnum örmum. Eldsnemma í fyrramálið mun ég svo halda til veiða í Þingvallavatninu volduga. Það verður ekki leiðinlegt enda gríðarlega langt síðan ég kastaði flugu seinast.
Hvað er með þessa rigningu?? Það er búið að vera skýjað í meira en viku eða meira jafnvel og ekki á ástandið að batna á næstunni. Það stefnir allt í klassískt íslenskt sumar með þremur sólskinsdögum og ekki söguna meir. Ég er að spá í að taka mér mér myndavélina í bústaðinn og smella nokkrum léttum. Það mun ekki skemma fyrir a.m.k.
Svo er ljúft að segja frá því að við FRAMarar náum stigi í Eyjum þar sem við mættum bandbrjáluðum Eyjamönnum í hörkuleik. Einn leikmaður úr hvoru liði sáu rautt sem segir allt sem segja þarf um ruddaskapinn sem sveif yfir vötnum. Næsti leikur er gegn ÍA og verður sá leikur sýnur beint á Sýn.
Jæja, seinni hálfleikur Víkings og KA er að byrja .. gotta go!
Aijt ...
miðvikudagur, maí 19, 2004
Er alveeeeg ...
... að verða búinn með ritlinginn. Á eftir að komast að niðurstöðu og gera heimildaskránna.
Í fyrramálið er mæting kl. 10.00 upp í FRAMhöll og þar verður snæddur léttur morgunkostur. Því næst verður brunað út á flugvöll og skotist til Heimaeyjar þar sem leikurinn mun hefjast á slaginu kl. 14 hundruð.
Phone of death!
Jón bróðir gleymdi símanum heima og Guð hjálpi mér! Andskotans síminn hringdi stanslaust og ég niðri í forstofu að rembast við að klára ritgerðina. Þetta var ekki hægt! Svo fór ég á æfingu og var að koma heim fyrir korteri síðan. Síðan þá hefur síminn hringt 5 sinnum. Ó mæ gaaaad!
Ég hef næstum því ákveðið að skella mér á Þingvelli á föstudagskvöldið en ekki alveg samt. Ég held ég hafi bara gott af því .. hvað finnst yo mofokkas??
Later ..
Aijt balllickers ...
þriðjudagur, maí 18, 2004
Ellúúú ...
Fallegur dagur í dag og allt að gerast .... NOT!
Það er einmitt lítið sem ekkert að gerast og ég er að verða vitfirrtur á þessum ritling sem ég á að skila af mér. Þetta gengur bara ekki nógu hratt fyrir sig. Ég þarf að sparka í rassgatið á mér ef ég ætla mér að klára etta drasl.
Aukinn bloggismi ...
Ég var að bæta við þremur bloggistum. Í fyrsta lagi er það Linda bekkpressa sem er sæt og hress stúlka og svo má ekki gleyma að hún er grjótharður FRAMari. Nei pervertar .. hún er ekki á lausu. Hún er unnusta og stoð og stytta Andra sem er stormsenter í FRAMliðinu og verðandi heimspekingur. Í öðru lagi er það FRAMkonur. Hún er fyrir eiginkonur, kærustur og aðrar stuðningsmannakonur leikmanna FRAM sem munu standa saman í sumar. Til gamans má geta að Linda stendur einnig fyrir þeirri ágætu síðu. Í þriðja lagi skellti ég link á síðuna Hans Sóla sem er drengur góður.
Þannig er nú það ....
Back to work!
Aijt ...
mánudagur, maí 17, 2004
Allt að gerast ...
Sælir og sælar öllsömul. Ef ég á að vera hreinskilinn, þá hef ég vesæli rakkinn ekki nennt að blogga vegna leti og innblástursleysis um málefni líðandi stundar. Það tekur einfaldlega of mikið á að logga sig inn á bloggerinn og berja á lyklaborðið. Svo er ég líka á síðustu stund með að klára ritgerð í opinberri stjórnsýslu sem á að skila sér á miðvikudag.
Það nýjasta og besta í fréttum er að við bláir kjöldrógum Víkinga í laugardalnum 3-0. Við FRAMarar erum semsagt efstir með 3 stig og 3 mörk í plús, ekki slæmt það! Næsta rimma er gegn ÍBV í Eyjum. Það verður blóðugur slagur þar sem olnbogar munu fljúga og fætur brotna.
Óli bróðir er orðinn spænskur deildarmeistari í bakhrindingum. Til hamingju los brósos!
Fjölmiðlafrumvarpið alræmda dettur til þriðju umræðu á Alþingi í dag. Vafalaust verður hatrömm umræða meðal þingmanna stjórnar og stjórnarandstöðu, ó jááá ...
Veðrið er geggjað úti! Skammarlegt að upplýsa það, en ég hef ekki enn dottið í veiði á los Þingvallos. Er þetta hægt ?!?! Ég get þó huggað mig við eitt og það er að annað eins stökkbreytt flykki bíður eftir mér í undirdjúpunum ... Muhahahaha!!
Lokaþáttur Survivor er svo í kvöld kl. 21. Vona að mannleysan hann Boston Rob fótbrjóti sig. Maðurinn er óþolandi með þennan Njú Jok (New York) mafíósa hreim sinn. Hann er svo undirförull að ég fæ gæsahúð. Mín heitasta ósk er að villimaðurinn Rupert taki milljónina. Heiðarlegri maður fyrirfinnst ekki í þessum þætti ...
Nóg með etta blaður í bili. Um leið og ég byrja að blogga um Survivor þá er það merki um að hætta bullinu.
Over and out ...
Aijt ..
fimmtudagur, maí 13, 2004
Profiles ...
Komnir eru út prófílar um okkur leikmenn FRAM. Þeir sem hafa áhuga geta nálgast prófílana hier ...
Aijt ...
miðvikudagur, maí 12, 2004
Bláar í gegn þessar ...
FRAMkonur eru búnar að opna sitt eigið blogg. Það má finna hér ....
4 stuttir í orustuna og viðbjóðsritgerð ....
Fjórir dagar í fyrsta leik á móti Víking sem háður verður á Laugardalsvelli, sunnudaginn 16 maí, kl. 19.15. Ég vil hvetja alla FRAMara til að mæta, stóra sem smáa, feita sem mjóa, fallega sem ljóta ... u catch my drift!!
Annars er ég spakur. Er að skrifa ritgerð sem ég á að skila á næsta miðvikudag. Ég er að fjalla um þessa spurningu:
Eru völd og áhrif opinberra starfsmanna lýðræðinu hættuleg?
Treystir sér einhver til að svara þessu í stuttu eða löngu máli?? Stiftamtmaður, láttu endilega ljós þitt skína. Þinn tími er kominn maður!!
Aijt ...
þriðjudagur, maí 11, 2004
Gleði og gúff ....
Mikil gleði ríkti um helgina hjá okkur bræðrum. Jón hélt heljarinnar grillteiti á laugardag sem heppnaðist mjög vel. Þar var margt um manninn og veigarnar flæddu um gólf. Ég var pollrólegur enda leikur daginn eftir við Grindavík. Fór í háttinn um tvö leytið eftir að hafa skutlað ræflunum downtown. Ég var sá eini í teitinu sem var edrú eins og linur besefi. Hinir voru beinstífir og skemmtu sér konunglega. Hvíldin skilaði sér margfalt í leiknum daginn eftir því kallinn setti eitt stykki mark auk þess að tækla mann og annan upp í nára. Leikurinn endaði 2-4, okkur í vil.
Í gærkvöld var sannkölluð bræðrastund því við tókum léttan kvöldverð á Friday´s í Smáralind og brunuðum svo í Háskólabíó til að drepa tíma yfir Van Helsing ræmunni góðu. Þetta var massa afþreying. Tæknibrellurnar voru rosalegar og hasarinn lét sig ekki vanta. Við bókstaflega ultum úr bíósalnum enda búnir að gúffa popp og nóa kropp á við tíu manns. Svo má ekki gleyma máltíðinni á Friday´s sem og íshrúgunni sem við átum í eftirrétt .. uss! Ég lét ekki þar við sitja því þegar heim kom sporðrenndi ég tveimur riiiisa súkkulaðibitakökum og þambaði nýmjólk með ..... Manni halda engin magabönd, það er orðið kristalljóst eftir áratuga reynslu af viðbjóðsgúffi.
Segjumettagottíbilinaglar ...
Aijt ...
laugardagur, maí 08, 2004
Ahhhhhh ....
Mér ber siðferðileg skylda að deila þessu með ykkur gott fólk. Fjölmargar viðbjóðslegar hendur eru þarna úti, grasserandi í saurgerlum og ég veit ekki hvað og hvað. Hugsið ykkur tvisvar um áður en þið grípið næst á spaðann á vingjarnlegu nágrannakonunni eða jafnvel bestu vinkonunni ....
Svo er mál með vexti að Árdís fór í próf í gærmorgun en ákvað að mæta snemma upp í skóla til að renna yfir glósurnar. Um klukkustund fyrir prófið varð hún að skella sér á dolluna því hún var alveg í spreng. Eftir stutta stund á dollunni var hurðinni hent upp og inn hljóp kona á háhæluðum skóm og var greinilega á mikilli hraðferð. Asinn á manneskjunni var þvílíkur að Árdísi varð strax ljóst að konan væri ekkert að spá hvort hún væri ein eður ei. Þetta var snemma um morgun og fáir nemendur á ferli og því var þetta líklega kennari eða annar starfsmaður háskólans. Hún hentist inn á eitt af klósettunum og skellti á eftir sér. Næst var vippað niðrum sig og hlammað sér á dolluna og svo byrjuðu lætin! Manneskjan stundi af ánægju þegar niðurgangurinn frussaðist af miklum krafti í dolluna. Hún stundi: "Ahhhhhh hvað þetta er gott, ahhhhhh!" Þvílíkur viðbjóður!! Árdís sat stíf á dollunni og vissi ekki hvort hún ætti að skella upp úr eða steinhalda kjafti. Hún valdi seinni kostinn og ríghélt kjafti í þær 20 mínútur sem það tók skessuna að ljúka sér af. EKki nóg með það heldur rauk hún beint út í mannlífið án þess að þvo sér um hendurnar!!! Þetta er náttúrulega ekki hægt ... össsssssss!!
Aijt ...
fimmtudagur, maí 06, 2004
Kuldi ...
Ég var að koma af fyrstu grasæfingu sumarsins ...
... brrrrrr!
Kósíheit ...
Er málið að stinga sér lóðréttum í heitt baðkar like a bombshell??
... Im working on it!
Aijt ...
miðvikudagur, maí 05, 2004
Best að enda þetta bara ...
Ég ætla ekki að blogga um pólitík að þessu sinni heldur rifja upp miður skemmtilegt atvik sem gerðist á Glaumbar hér um árið þegar ég var ungur hnokki. Ég var ekki samur eftir þetta atvik .....
Ég man ekki nákvæmlega ártalið en þetta var um það leyti sem ég steig mín fyrstu spor í meistaraflokki FRAM. Ungir drengir sem komu nýir inn í hópinn voru iðulega skjálfandi af stressi og með kökkinn í hálsinum. Ég var a.m.k. þannig, alger kveif með lítið confidence. Við yngstu leikmennirnir vorum kallaðir púpurnar og er sú hefð enn við lýði í dag.
Þá sjaldan sem knattspyrnumenn fara út á lífið er yfirleitt skandalíserað með óhóflegri brennivínsdrykkju. Það skrall sem á við í þessari sögu var engin undantekning á því. Meistaraflokkur stóð fyrir djammi og ég sá mér einskis annars en að mæta og sýna lit. Menn voru á herðablöðunum, ælandi og svívirðandi. Af einhverri ástæðu endaði hluti liðsins á Glaumbar eftir að hafa tekið vel á því í heimahúsi fyrr um kveldið. Glaumbar var og er viðbjóðslegur staður sem hæfir vart strætisrottum og hundum, hvað þá eðlilegu fólki. Ég stundaði þennan stað grimmt sem táningur og græddi lítið á því annað en að vera skallaður í eitt skiptið af e-pillufíkil með hundaæði og í hitt skiptið lenti ég í handalögmálum út af skonsu sem var ekki einnar krónu virði.
Vindum okkur aftur að sögunni ....
Ég var orðinn vel kósí með fljótandi augu og óstapílt göngulag. Í þá daga kunni ég mér ekki hófs í vínþambinu og oftar en ekki endaði ég steindauður með trýnið í eigin gumsi. Ég settist við borð sem nokkrir bláir höfðu hertekið með yfirgangi og látum. Innan skamms settist við hlið mér kona sem ég kannaðist ekkert við. Hún var dauuuuðadrukkinn og þvoglumælt með eindæmum. Hún reyndi eitthvað að tjá sig en það gekk hrikalega og ég hugsaði bara: "Þetta er ekki að gerast!!" Hún var svo drukkin að eyelinerinn var farinn að leka niður með svitanum.
Eftir stutta stund í helvíti fór hún loks og mér léttist lundin. Ég vék mér að liðsfélaga mínum sem by the way var einn af gömlu köllunum í liðinu og sagði með tilheyrandi viðbjóðslúkki: "Hvaða viðbjóður var þetta eiginlega!???"
Liðsfélaginn svaraði án hiks: "Þetta er konan mín og barnsmóðir" ....
Ég stóð upp, gekk í átt að barnum .. vippaði mér yfir barborðið og fann þar afsagaðan haglara og skaut mig í hausinn. Það gerði ég a.m.k. í huganum en svo auðveldlega slapp ég ekki, ó nei ......
Skömmin lifir enn í dag ....
Aijt ...
mánudagur, maí 03, 2004
Með lögum skal land byggja og með ólögum eyða ...
Allt er að verða snælduvitlaust á þingi út af fjölmiðlafrumvarpinu. Ég skil ekki af hverju stjórnarandstæðingar eru að hrauna Davíð Odds í drasl. Þeir eru með manninn á heilanum og geta vart sofið um nætur. Það mætti halda að hann einn bæri ábyrgð fjölmiðlafrumvarpinu. Það er stór misskilningur! Maðurinn er fæddur leiðtogi og hefur dregið þjóðfélagsskútuna ásamt sínum mönnum. Það kemst enginn með tærnar þar sem hann hefur hælana. Það er vert að beina athygli lýðsins að því að frumvarpið er ekki lagt fyrir vegna geðþóttaákvörðunar ríkisstjórnarinnar, hvað þá Dabba Odds, heldur hefur þetta verið í gerjun í langan tíma. Sérstök nefnd var skipuð í desember á seinasta ári til að fara yfir þessi mál. Hún skilaði af sér niðurstöðum sem leiddu til samsetningu fjölmiðlafrumvarpsins. Það er eðlilegt að ríkið vilji setja fyrirtækjum skorður sem eru ráðandi á sínum mörkuðum. Setja verða ákveðnar leikreglur til að heilbrigð samkeppni geti áfram þrifist með tilheyrandi þjónustu. Tilgangurinn með frumvarpinu er að tryggja að fyrirtæki verði ekki of valdamikil og þykir mér það mjög skynsamlegt.
uno serverja ...
Verður tekinn einn miller á kósí pöbb í vikunni??
... Ja, hví ekki!
Aijt ...
laugardagur, maí 01, 2004
Kill Bill 2...
Datt í laugarásbíó með Árdísi og sá Kill Bill 2. Hún var vægast sagt svakalega langdregin á köflum en í heildina séð var þetta fín mynd. Bardagaatriðin voru náttúrulega bara snilld og lögin sköpuðu réttu stemninguna. Ég er á því að Quentin Tarantino sé einn af mínum uppáhalds leikstjórum. Af öllum þeim myndum sem hann hefur leikstýrt hefur ekki ein klikkað. Nema kannski Dusk til Dawn myndirnar. Þær voru tæpar en samt fullar af atriðum sem hægt var að hlæja að. Svo er maðurinn sjálfur algjör snillingur. Teigar viskí eins og vatn og lítur út eins og Frankenstein ... þetta er nagli.
Ég þarf að fara að uppfæra myndasíðuna. Ég hef nú ekki verið duglegur að taka myndir. Held reyndar að ég hafi ekki tekið eina mynd eftir að ég kom frá Spáni. Ég fékk bara algjört ógeð ....
Ég mun ráða bót á því fyrr en seinna!
Aijt ...
föstudagur, apríl 30, 2004
Zup ...
Það er farið að styttast ískyggilega í íslandsmótið mar! Úff ... Þetta verður rosalegt. Okkur bláum er spáð 9. sæti af íþróttafréttamönnum Sýnar. Ég get ekki beðið eftir að finna grasilminn af takkaskónum og fá gróðurofnæmið í augun. Ég vona að þetta sumar verði milt og gott. Ég vil fá viðskiptabann á rokið! Er einhver möguleiki á því Hagnaður?? Rokið er algjör gleðispillir. Það er í lagi að fá smá gust þegar heitt er í veðri en málið er, að á Íslandi er aldrei nógu heitt. Rokið spillir öllu. Ef lognmolla myndi ríkja hér á klakanum, þá væri klassa veður. Svo á sunnudag opnar veiði í Þingvallavatni ... Ó jááá!!! Ég tek próf á þriðjudag og svo er ég fínído! Vinnan byrjar svo í júní .... Oooooog svo kemur Jón bróðir heim á þriðjudag ... excellent!
Aijt ...
fimmtudagur, apríl 29, 2004
Shalom!
Stjórnmálaheimspekin tilheyrir fortíðinni ....
Næsta próf er 5 maí. Spurning um að byrja að læra?
Nei ...
Aijt ...
mánudagur, apríl 26, 2004
Annir ...
Er í próflestri og ætla mér því að spara bloggpistlana um tíma. Máski mun ég henda inn nokkrum línum við tækifæri ...
Aijt ...
laugardagur, apríl 24, 2004
Út í óvissuna ...
Við bláir erum á leið í óvissuferð. Stjórnin er búin að plana eh. voða sniðugt. Í raun vona ég að ekkert verði gert utandyra. Veðrið er hrikalegt og verður ekki mikið verra. Ég bið til Guðs um heitan pott og nokkra bjóra yfir Man U. og Liverpool leiknum .... ummmm!
Aijt ...
miðvikudagur, apríl 21, 2004
Dickacids ...
Hugtakið tippasýrur hefur fylgt mér eins og skugginn síðan í barnó. Já já já, ég veit .. hvað er ég að bulla eiginlega?
Í barnaskóla var ég kærulaus sláni eins og ég nefndi áður. Ég hafði gaman af tippabröndurum og hataði ekki að drepa félagana úr hlátri með nokkrum góðum. Ég man samt ekkert um hvað þessir tippabrandarar voru ... hummm. Gott og vel, ég var 12 ára og einn daginn sátum við í skólastund og Marta martröð, umsjónarkennarinn okkar, var að kenna okkur um býflugurnar og blómin. Við klámhundarnir hötuðum nú ekki að dagdreyma um hitt kynið og hvað þá að læra um það í kennslustund! Á þessum aldri voru hormónarnir snartvitlausir og linntu ekki látum þarna niðri, spilandi veggtennis í pungnum á manni til að fá útrás. Maður var svo úberklikkaður, að teiknimyndirnar sem Marta kennari studdist við í kynfræðslunni voru nóg til að fá félagann í fulla stöng. Þennan umrædda dag vorum við að læra um kynfæri karla og kvenna. Magnþrungin spenna lá í lofti og ekki leið á löngu þar til Helgi gormur bað um að fá að skreppa á kamarinn til að taka rúnkið :) Marta stikaði vandræðalega fyrir framan myndvarpann og útskýrði allt í smáatriðum. Stúlkurnar gátu ekki hætt að flissa og strákarnir voru alvörugefnir í óða önn við að fela standarann. Er liðið var á kennslustundina var komið að verkefnastund. Allir fengu í hendur blað með myndir af kynfærum beggja kynja. Næst áttu allir að skrifa inn á blöðin rétt heiti ákveðinna líffæra í kynfærunum (þetta er ekki eins flókið og það soundar). Ég og félagarnir, Snorri, Funi og Helgi vorum í essinu okkar og skemmtum okkur konunglega. Ég var orðinn dofinn í skallanum því allt blóðið fór í besefann. Áður en ég vissi af, hafði ég kallað upphátt upp yfir bekkinn þessa líka háfleygu setningu:
"Hvar eru tippasýrurnar?" (Í raun meinti ég eistnalyppurnar en vissi ekki betur)
Þetta var svona moment þar sem mikið skvaldur var í bekknum en um leiiiið og kallinn dirfðist að opna á sér trantinn, þá hljóðnaði skyndilega allt draslið. Þegar ég hafði lokið mér af tók ég eftir hve allir göptu í átt að hurð kennslustofunnar. Nei nei nei neiii! Þar stóð aðstoðarskólastjórinn í öllu sínu veldi sem í þá daga var kallaður yfirkennari. Hann horfði á mig stingandi augum, sennilega hugsandi hve illa upp alinn og viðbjóðslegur sláni ég væri. Það fyndna er, að ég sagði aaaaldrei orð í tímum, ever! Loks þegar ég lét til mín taka þá gerði ég mig að algjörum asssss! Þetta fannst félögunum voða fyndið og síðan þá hefur þetta loðað við mig .. "hvar eru typpasýrurnar?" ...
Aijt dickacids!
þriðjudagur, apríl 20, 2004
Eins og ryðgaður öngull ...
Svo er víst krakkar mínir. Ég er alveg kengboginn eins og ryðgaður öngull. Ég fór í göngugreiningu í gærdag og þá kom þetta í ljós. Ég er semsagt óeðlilega skakkur í mjóbakinu sem orsakar 6 mm. styttingu á vinstri fæti. Næsta skref er að fá innlegg og sjá svo til. Þetta gæti hugsanlega þýtt endalokin á þriggja ára meiðslagöngu minni ...
Aijt ...
mánudagur, apríl 19, 2004
Til að gera langa færslu stutta ...
Við bláir unnum Þrótt 2-1 í gær ...
Sendlatík Heklu hf. í sumar verður moi ...
Ísraelsmenn eru í svoooo djúpum skít, Palestína leitar hefnda ...
Björn Bjarna er "jafnréttissinni" ...
Bush er gyðingarassasleikja ...
Ég er svangur ...
Nákvæmlega 30 dagar í fyrsta leik blárra í Íslandsmótinu ...
Vil óska Dagnýju skvís og Fjölnisstelpum til hamingju með 13-1 sigur á Þrótti (í fótbolta!!) =) ...
Próf í stjórnmálaheimspeki eftir 10 daga (".) ...
Árdís, sh'teme ...
Aijt ...
laugardagur, apríl 17, 2004
Neiii, nú detti mér allar dauðar ...
Snati minn, sagan er á þessa leið félagi ....
Það var venjulegur dagur í Laugarneshverfinu góða. Ég var í 10 ára bekk, feiminn og hógvær drengur sem sagði tippabrandara en það er önnur saga. Lífið gekk sinn vana gang þar sem allt snerist um stúlkur (sem þýðir að allt mitt líf hefur meira eða minna snúist um skonsur!). Gott og vel, þennan dag bar okkur peyjunum í bekknum (5-N) að fara í læknisskoðun. Ég var (og er) með eindæmum trúgjarn og hef alltaf verið frekar utan við mig ... kærulaus if you will. Margir illa innrættir bastarðar hafa gegnum tíðina nýtt sér sakleysi Eggsterans eins og þessi saga mun sanna ... :)
En jæja, venjulegur skóladagur í fullum gangi og við strákarnir á leið í læknisskoðun. Við fórum ekki allir í einu heldur fórum við í hollum, tveir fyrst o.s.frv. Hinir sátu eftir í tíma og fóru svo seinna. Ég var einn af þeim sem kom seint inn á biðstofu læknisins og sá ég að Snorri og Funi höfðu beðið eftir mér þar. Þeir voru mínir bestu venir á þeim tíma ... góðu venirnir! Ég gekk inn og í kæruleysi mínu beint í gildruna sem þeir höfðu lagt á ráðin um. Þeir voru svo lúmskir þessir djöflar! Þeir sögðu að þeir hefðu þurft að berhátta all the way, og verið látnir leggjast á bekk með félagann skroppinn og skagandi út í loftið. Svo hefði læknirinn komið, sem by the way var kona, og skoðað félagann með töng!! Ég náttúrulega fékk alveg sjokk og kyngdi nokkrum lítrum af munnvatni. Hjartað tók að berjast í brjósti mínu og linnti ekki látum fyrr en löngu seinna eftir að hafa misst úr nokkur slög. Ég kom varla upp orði en nokkrum þó:
"Er þaað?? Eruð þið ekki að grínast??"
Þeir svöruðu að bragði:
"Þetta er satt."
Ja nú voru mér allar bjargir bannaðar. Ég að fara að stripplast á rækjunni og fyrir framan kellingu í ofanálag. Þetta var of mikið!
Út af stofunni kom kona á miðjum aldri og kallaði upp nafn mitt. Ég elti hana hægum skrefum með hjartað í brókunum, þjakaður af kvíða.
Ég gekk inn á læknastofuna og byrjaði strax að tína af mér spjarnirnar. Fyrr en varir stóð ég, þvengmjór og slánalegur á naríunum einum fata, sennilega með bremsufari í. Ég tók í strenginn á naríunum og spurði konuna:
"Á ég að klæða mig úr öllu?"
Konan leit upp úr pappírunum og sá mig standandi all sexy n´shit á naríunum og sagði:
"Nei nei nei nei, það er algjör óþarfi. Ég þarf bara að mæla þyngd og hæð."
Sagði konan og brosti sínu breiðasta. Ég stóð álengdar eins og asni og fann til auðmýktar. Ég hugsaði til Funa og Snorra frammi á gangi laughing their asses off :) Djöfull var ég tekinn í bólinu og flengdur á beran bossann. Ég held ég hafi aldrei hefnt mín á ykkur bastörðunum, eða hvað??
What an ass!
Aijt ...
