Aijt!
laugardagur, febrúar 28, 2004
Laugardagskvöld!
Vona að allir þeir sem ætla út í kvöld skemmti sér vel! Passið ykkur á skrallfíklunum .. þeir eru varasamir!
Aijt!
föstudagur, febrúar 27, 2004
Það rétt slapp!
Fékk 7.5 í einkunn :) Eggsterinn er ekki alveg nógu sáttur því kennarinn hafði strokað yfir einkunnina 8.0 .... Damn!! Svekkjandi að sjá áttuna liggjandi þarna, útkrotaða og vannýtta! Skil ekki svona vinnubrögð en þó! ... Ég náði markmiðinu og það stendur upp úr amstri þessa dags. Því meiri ástæða til að skella sér á herðablöðin annað kvöld ....... ah yeah!!
"Hvað er að gerast!?!?"
Var í makindum mínum staddur í World Class rétt eftir hádegi. Kemur ekki Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi og meiðslagemsi með meiru og grípur í spaðann á kallinum:
"Sæll, Jón Arnar hérna."
Ég stóð agndofa og vissi ekki hvar á mig stóð veðrið því manninn þekkti ég ekki neitt!
"Má ég spyrja þig einnar spurningar"?
Ég byrjaði ómeðvitað að ganga af stað því aðstæðurnar voru ögn þrúgandi innan um lóðin og gaulandi steramassana. Ég svaraði að bragði:
"Jújú, skjóttu."
Tugþrautarkappinn lifnaði allur við og vék sér að efninu:
"Stúlka sem vinnur hérna sendi mig til að spyrja þig hvort þú værir á lausu."
Ég hugsaði fyrst hvort þetta væri eh. djók en til að ljúka þessum vandræðaleik svaraði ég að bragði:
"Nei, því miður ... ég er á blýföstu."
Arnar brást hinn versti við, tók upp tveggja kílóa lóð og sveiflaði því í áttina að gagnauganu .... Ég var til allrar lukku stilltur á tiger mode og vék mér undan. Við þetta missti Arnar greyið takið á lóðinu sem fór í loftköstum beint í hairdúið á Þóri Jóseps sem var afmyndað af froðu og krullum! Lóðið gjörsamlega hvarf inn í permanentið á kallinum sem lét sér fátt um finnast, sneri sér rólega við, kreppti bíseppinn og hélt svo áfram að skoða þvottabrettið í speglinum. Ég sá mér leik á borði og stökk á tugþrautarkappann og sneri hann niður með annarri og köffaði hann með hinni. Hvaðan komu handjárnin? Ja, það er spurning! Þetta voru sko engin vettlingatök enda vældi tugþrautarkappinn eins og tjelling. Hvað er satt og hvað ei? ... Ja, það má liggja milli hluta!
Þvílík risasteypa!
Aijt!!
fimmtudagur, febrúar 26, 2004
Ný könnun í tilefni helgarinnar!
Kallinn er að chekka á púlsinum fyrir helgina því stefnan er sett á downtown saturday night! Ég verð væntanlega kósí á hvolfi með cameruna í annarri og Corona í hinni. Þá er bara spurningin, hvar verðið þið??? Það kemur í ljós fyrr en seinna .....
Hetja eða skúrkur?
Einkunnin fyrir verkefnið skilar sér í fyrramálið! Ég er spenntur :) Verð ósáttur ef ég fæ undir 7.0 .. þá er eitthvað að kerfinu. Vona það besta! Koma svo Eggster!
Ein spurning að lokum?
Hvert á svo að fara um helgina??? Þessi spurning er ætluð skrallfíklunum (Sjá póst frá 13. feb.) sem ætla að svívirða og vera svívirtir á hinn sanna íslenska hátt! Þeir munu hrista rassa, þeir munu sjá rassa hristast ...... Þeir munu drekka, þeir munu drekka yfir sig! Ekki vera feimin við að kommenta venir!
Aijt!!
"Gríðarleg þátttaka í könnun vekur athygli"
Þá er það væntanlega komið ... 19 atkvæði greidd í könnuninni sem er náttúrulega bara skammarlegt!!! Come on krakkar! Það lítur út fyrir að kallinn þurfi að markaðssetja síðuna betur. Bjóst við minnst 100 atkvæðum .... ehhe :)
Það er semsagt skjalfest að stór meirihluti þeirra sem kusu eru ekki hlynntir lögleiðingu vændis (68%) og er ég þar á meðal. Hinir eru aaaaalveg veruleikafirrtir (32%)!
miðvikudagur, febrúar 25, 2004
Stebba sissssss!
Hún Stefanía, mín bráðhuggulega systir er komin með blogg :) Hún er á fólk.is en ég spjallaði við hana og mælti með blogger.com því hann er einfaldlega skemmtilegri. Endilega kíkið á dömuna ... hún er alveg steikt eins og við bræðurnir. Svall og svínerí á kantinum á Ítalíu :)
Aijt suckasssss!
Klassi!
Kommentakerfið komið í gagnið og allt að verða vitlaust! Ég tjekkaði á öðrum bloggsíðum til sjá hvort kommentin vantaði og já, svo var staðreyndin :) Kallinum hlýnaði um hjartarætur vitandi, að hann einn væri ekki þjakaður af áhyggjum vegna lautarferðar kommentakerfisins. Sólin hóf sig á loft og fuglarnir ...... Alveg rólegur!
Leti er freisting djöfulsins ....
Já, djöfullinn hefur nóg að gera í að freista mannkyns til að gera einhverja hraunsteypu. Letin er þar á meðal. Hún hefur ekkert jákvætt í för með sér. Ég hef nú persónulega látið letina bitchslappa mig oftar en einu sinni en hingað og ekki lengra! Hef verið mjög óduglegur í lærdómnum í dag og aðeins lesið um 10 blaðsíður um Karl Marx og framlag hans til stjórnmálahugmynda heimsins. Verð að slá mig í hnakkann og nudda stírurnar úr augunum. Það fer allt of mikill tími í vasabilljard. Koma svo!!!!
Ze photos ...
Var að enda við að tala við Jón bróðir áðan og hann benti á myndaleysi á síðunni. Þetta er laukrétt! Kallinn þarf nauðsynlega að henda inn fleiri myndum á síðuna. Eruð þið ekki sammála hnakkar? Einfalt er meðalið við því. Byrja bara að taka myndir af öllum heimsins óþarfa og henda hérna inn. Ekki málið .... Reyndar hefur allt sín takmörk. Ætla að ritskoða stuffið og svo henda því inn!
Aijt!
Kommentakerfi, where art´ thou?
Hver djöfullinn! Kommentakerfið horfið af síðunni og ég breytti ekki neinu .... Hvað er að gerast???
Djöfulsins!
Aijt!!!!!!
mánudagur, febrúar 23, 2004
Rúmeninn er barbari!
Eggsterinn er alveg búinn tonite! Var að detta úr klassanum þar sem vel var tekið á því. Þá meina ég ekki í lyftingum heldur hlaupum dauðans. Rúmenninn lét okkur hlaupa 2000 m. á 16.5 km/klst fjórum sinnum. Það er killer tempó, goddamn! Á morgun hlaupum við tíu sinnum 800 m. á 17.0 km/klst!! Til viðmiðunar, þá er einn hringur á hlaupabraut 400 metrar. Semsagt, ef ég svara ekki símanum annað kvöld, þá er það vegna þess að ég hef hlaupið yfir móðuna miklu á 17.0 km/klst. :)
Körrrtrishhh!
What is the smartest thing that has come out of a womans mouth?
Einsteins cock! HAHAHAHAHA ... (Gervihlátur)
Var að horfa á ræmu með Kurt Russel og Kevin Costner í aðalhlutverkum þar sem þessi djókari var tekinn og myrtur í aftursæti á Cadillac. Býst við að flestir hafi heyrt þennan, en ef ekki ... þá njótið :)
John Kerry ... ég treysti á þig cuz!
Sumargjöfin í ár er að losna við kúrekadjöfulinn, George Bush Jr. af valdastóli. Þessi maður er svo hrokafullur og siðblindur að ekkert væri nóg! Lætur bandarísku þjóðina sitja á hakanum meðan stríðsrekstur og stuðningur við ógnarstjórnir í öðrum heimsálfum gengur fyrir! Það er þessum manni og samverkamönnum hans að kenna að dollarinn er eins lágur og raun ber vitni. Úr því að Bush er svo mikill "friðarsinni", af hverju skiptir hann sér ekki af borgarastríðinu í Afríku?? Því þar er engra hagsmuna að gæta fyrir "The greates country in the world"! Þar fellur fólk umvörpum í tilgangslausum borgarastyrjöldum þar sem mannréttindi þekkjast ekki. Bandaríkjamenn eru tækifærissinnar sem sjá ekki lengra en nefið á þeim nær! Það gæti ekki hvaða þjóð sem er sniðgengið Sameinuðu þjóðirnar eins og að drekka Miller á kósí kvöldi ... Meiningin er ekki að alhæfa að allir Kanar séu slæmir, það væri nú ekki réttlátt. Núverandi forseti Bandaríkjanna er a.m.k. slæmur .... hann er rotið eppli.
Eigið góða kvöldstund :)
Aijt!
Könnun, taka tvö!
Ég vil vinsamlegast biðja fólk um að kjósa aftur í könnuninni því ég var að skipta úr Alxnet yfir í Sparklit. Það væri mér mikils virði því ég er að reyna að fá smá innsýn í huga fólks varðandi þetta málefni. Þúsund þakkir allihoppa :)
sunnudagur, febrúar 22, 2004
Róleg helgi ...
Fín helgi að baki og skóli í fyrramálið. Bústaðaferðin var fín í alla staði þar kjúklingur var snæddur. Kartöflusalat mínus lauk var í meðlæti. Við hentum tveimur kjúllum í ofninn því von var á sekknum í mat en aðeins einn var snæddur. Í eftirmat var ísblóm .... ummmm! Ísblóm hefur verið á markaðnum síðan ég fæddist og er enn að. Hefur reyndar aldrei smakkast betur. ´
Eftir matinn skelltum við spennumyndinni Frailty í tækið með Matthew McCloughlanahough í aðalhlutverki. Myndin og Nóa kroppið klikkaði ekki í svartnættinu. Í miðri mynd kviknaði allt í einu á útvarpinu í eldhúsinu og var það spookí með eindæmum. Eitthvað yfirnáttúrulegt var þar að verki, no doubt.....
Eftir ræmuna tók kojan við. Sá gamli fékk king size hjónarúmið og við skötuhjúin lögðumst í koju, ég í þá efri. Ég passaði akkúrat í kojuna .. það var varla speis til að klóra sér í félaganum! Ég vaknaði þakklátur um morguninn sáttur með að hafa náð að sofna við þessar þéttu aðstæður.... Þéttleikinn var gríðarlegur! Coco Pops var tekið með trompi og sekkurinn kvaddi um 10.50 stundina. Ég og Árdís stóðum eftir og horfðumst í augu: "Læra? ...... Neiiiii!" Stjórnmálaheimspeki var því ekki lesin að þessu sinni ....
Daginn enduðum við á að horfa á ÍA bursta FRAMara 5-2 í Egilshöll ..... !!!
Ég er búinn að henda inn fáeinum myndum úr sveitasælunni. Þær má finna í albúminu undir - Myndir - Við náðum ekki að smella mörgum myndum því vélin varð fljótlega batteríslaus.
Aijt .....
