Aijt!
föstudagur, mars 19, 2004
Kallinn is back mofokkas!
Kallinn stefnir á að spila sinn fyrsta leik í laaaaangan tíma í kveld móti Fimleikafélagi Hafnafjarðar. Ég fæ að sprikla í rúman hálftíma ef Rúmeninn leyfir því leikformið er jú ekki í toppi. Annars er það helsta og skemmtilegasta að frétta úr boltanum að við Bláir erum á leið til Spánar í æfinga - og keppnisferð. Þar verður æft stíft í lognmollu og steikjandi hita milli þess sem mörghundruð lítrar af vatni verða þambaðir. Að auki og til yndisauka munum við Bláir há orustur við þrjú íslensk lið í skemmtilegu og spennandi móti.
Já ..... þetta verður ljúft. Sól og svínerí á Spáni. Ekki slæmt það ....
35 ....
Ég ætla að sjá hvort atkvæðin nái upp í 35 stykki. Um leið og ef það gerist, mun höfundur ljóðsins sem hlotið hefur flest atkvæði standa uppi sem sigurvegari ljóðasamkeppninnar og í kjölfarið hreppa nafnbótina; heiðursskáldið. Ljóðið mun ég skjalfesta á forsíðuna skáldinu til heiðurs! Er nær dregur sumri mun kallinn henda upp annarri kvæðaorustu þar sem högg munu fljúga og tennur brotna .....
Farsímar til sölu!
Tveir 3310 nokia GSM-símar með lélegum batteríum eru til sölu og leita eftir nýjum og ferskum eigendum. Verð fyrir hvorn síma er 2500 kell. Áhugasamir hafi samband við Eggsterinn í eggertstef@hotmail.com .. aijt!
Aijt!
miðvikudagur, mars 17, 2004
Dumb bastards!
Ég er orðinn langþreyttur á fréttum í fjölmiðlum um deilur gyðinga og araba í austri. Ástandið milli þessara þjóða er einn stór vítahringur sem virðist óleysanlegur, a.m.k. á yfirborðinu. Þetta minnir pínulítið á Íslendingasögurnar þegar menn huggu menn í herðar niður til að hefna ættar sinnar. Hvernig yrði ef menn tækju aftur upp þann sið?? Allt myndi grassera í viðbjóði. Svona er þetta á Vesturbakkanum í dag. Í stað spjóta og sverða eru vélbyssur og herþyrlur. Í morgun var ég einmitt að lesa enn eina greinina um átök Ísraela og Palestínumanna. Fyrirsögnin var á þessa leið: "Eldflaugum skotið á Gazaborg." Í greininni stóð að her Ísreaelmanna skutu eldflaugum á skotmörk í Gazaborg til að HEFNA fyrir tilræði sem Palestínumenn stóðu fyrir áður. Ef þetta heldur svona áfram, þá má gera ráð fyrir næstu öldum undirlögðum í ófrið meðal þessara þjóða ... mark my words. Það liggur ljóslifandi fyrir, að friður næst ekki með hefndaraðgerðum. Því fyrr sem þetta lið áttar sig á staðreyndunum, því fyrr batnar ástandið ..... Think u dumb bastards!!
Kjósið, NÚNA!
Jæja göndlar og göndlarínur nær og fjær. Það er komið að yo fat asses að velja svalasta ljóðið. Í könnuninni getið þið valið ze winner eftir að hafa farið í ljóðasafnið og lesið ljóðin. Nú ber að velja og hafna!
Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr ... finnið þið skjálftann?? Spennan er gífurleg!
Forsetinn fer hvergi ...
Þá vitið þið það. 13 atkvæði með forsetaembættinu en 11 á móti því. Þá er bara spurningin, hver á að gegna þessu embætti?
Aijt suckas ....
þriðjudagur, mars 16, 2004
Húmor, meiðsli, munnmök, vinátta .....
Gott kvöld kæru lesendur. Ég vil byrja á að hrósa þeim hugrökku sálum sem lögðu sitt af mörkum í ljóðasafnið! Í kvæðunum sem duttu inn má sjá húmor, meiðsli, munnmök, vináttu og fleira krassandi. Sjón er sögu ríkari. Ég hef ákveðið að bregða mér úr stóli dómara og skella ábyrgðinni á lýðinn, lesendur sjálfa. Lýðræðislega kosningu tel ég vera skárri kost en álit einnar sálar. Þið kíkið á ljóðin í safninu og veljið það besta af þeim sem ég raða upp í könnuninni ... aijt!! Oh, þetta verður spennandi!
Fyrst um sinn vil ég gefa fleirum tækifæri á að sýna snilli sína í ljóðlist og senda inn í samkeppnina ...
Aijt ... faijt ... raijt ... saijt ....
mánudagur, mars 15, 2004
Ze game is on partners!
Snatidjöfulsins, minn gamli góði venur hefur riðið á vaðið og skellt tveimur háfleygum í ljóðasafnið! Þið farið nú ekki að láta Snata strauja ykkur án vægðarlausrar mótspyrnu, common u bastards! The game is on. Nú hljóta kvæðin að fara að streyma umvörpum í ljóðasafn Eggsterans :)
Karlmenn in a nutshell ... ?
Vil taka það fram að kallinn er ekki að alhæfa um eðli karlmanna almennt. Sumir eru bara eins og þeir eru. Við erum allir bunch af sauðum og þar á meðal eru nokkrir svartir .. nomsayin??
Það er gaman að velta þessu fyrir sér, þ.e.a.s. tilfinningalífi karla og kvenna. Ég sá eitt sinn kvikmynd fyrir laaaaanga löngu þar sem huggulegur hnokki kynntist kynþokkafyllri hnátu. Gagnvæm hrifning ríkti og spenna stigmagnaðist. Daginn eftir fyrsta stefnumótið mættu þau til vinnu og mættu athygli vina sinna. Hnokkinn gekk til félaga sinna og hnátan til vinkvenna sinna.
Hnátan byrjaði að leysa frá skjóðunni þar sem m.a. kom fram hve hnokkinn væri yndislegur "listener". Hann væri svo næmur og léti henni líða sem sannri dömu. Í kjölfarið komust vinkonurnar í ..... "Awwwwwww, sætur"! ... múdið og runnu af stólunum.
Hnokkinn gekk galvaskur til félaganna, nýgreiddur með Sean Paul Gaultier ilmandi á hnakkanum. Hann setti upp töffara lúkkið, blikkaði til gauranna og rauf ekki þögninga sem ríkti. Félagarnir glottu og litust í augu, kinkandi kolli. Einn félaginn gat ekki setið á sér og rauf þögnina: "tókstu hana??" ... Upp ruku fagnaðaróp og hlátrasköll. Hnokkinn lifnaði allur við og byrjaði að gefa félögunum "five" meðan aðförunum var líst í smáatriðum.
Hehehe...
Aijt ...
109 sons´bitches :)
109 stykki hafa heimsótt "Aijt" eftir að ég gangsetti teljarann og er það sætt. Mér hlýnar um hjartarætur og eflist á alla lund. Það er gaman að vita til þess að fólk nenni að lesa þessa pakkasúpu sem kallinn lætur út úr sér, málefnalegt sem ómálefnalegt.
Ég vil nota tækifærið og hvetja fólk til að skjalfesta sig í gestabók Eggsterans. Hún er hér fyrir ykkur krakkar mínir og enga aðra. Það er líka gaman fyrir kallinn að sjá hvaða flækingar detta hingað af vefnum.
Hver verður næsti Laxness?
Svo vil ég líka benda á ljóðaleysið sem hrjáir síðuna. Vil innilega að fólk skrifi einhver ljóð í safnið, sama hve útúr kortinu fáránlega lélég þau eru. Þetta er til gamans gert og fyrir okkur öll að hlæja að :) Af næstu fimm kvæðum (ef einhver verða) sem skjalfest verða í ljóðasafnið, mun ég ("sérfræðingurinn", yeah right!) kjósa besta ljóðið og birta í beinni! Notið bara dulnefni ef svo ber undir.... aijt fokkers!
