Aijt!!
Aijt!
laugardagur, júlí 24, 2004
 
Bag of nuts ...

Það gerðist nokkuð fyndið í 11-11 í gærkvöldi. Ég var búinn að leigja Mystic River sem er by the way massa góð. Ég lagði leið mína í 11-11 til að versla Pringles til að gúffa yfir ræmunni. Gott og vel. Kallinn búinn að velja sér Pringles með beikonbragði og gengur að kassanum. Afgreiðslumaðurinn segir gott kvöld og straujar Pringles staukinn af fagmennsku. "Það gera 450 krónur". Segir hann svo. Ég ætlaði að renna niður rennilásnum á græna jakkanum mínum en fattaði þá eitt. Fokk, ég er ber að ofan innan undir jakkatuskunni! Eftir um 5 sek. ranka ég við mér þegar gaurinn segir hikandi: "Á ég að hjálpa þér að velja eða??" Þá stend ég með veskið í hönd og er að rétta gaurnum það. Gaurinn fer nett hjá sér og heldur sennilega að ég sé eitthvað nuts. Í fyrsta lagi ber að ofan innan undir jakkanum og svo réttandi honum veskið mitt eins og einhver steik. Þegar ég fattaði hvað ég var að gera tók ég nett hláturskast og henti í hann debetkortinu. Svo gekk ég út og hló alla leið heim. Það fékk svo á mig að fatta að ég væri ber að ofan innan undir jakkanum að allt fór á hvolf í kollinum.
Svona getur maður verið ruglaður stundum .. usss og svei!    

Aijt ....


fimmtudagur, júlí 22, 2004
 
Hæ ...

Kellinn er risinn upp úr rotinu og hefur aldrei verið hressari. Er staddur í tölvunni hennar Kristínar og hef það bara helvíti gott! Upplausnin í tölvunni hennar er algjört súúúkkulaði. Letrið er svo yndislega smátt og það er ekki vottur af klunnaskap í neinu. Ég ætla að njóta þess að blogga í þetta skiptið :)

Ég var að ljúka við að senda umsókn upp í Síma. Ég sótti um starf þjónustufulltrúa í þjónustuveri. Ég ætla aðeins að hvíla mig á skólanum. Ég er einhvern veginn ekki að dansa í réttum takti við háfleyga tónlist HÍ. Áhuginn er bara ekki til staðar. Stjórnmálafræðin var svosem allt í lagi. Upp úr amstri háskólaára minna hefur stjórnmálaheimspekin, reikningshaldið  og þjóð - og rekstarhagfræðin staðið upp úr. Upp úr erfiðinu hef ég hlotið 4 einingar!! Auðvitað hefur áhuginn verið í minna lagi og hefur því latt mig frekar en hvatt. Hvað getur maður sagt. Lífið er brekka, stútfull af hindrunum og allskonar óvæntum uppákomum. Trikkið er að strauja brekkuna og læra af mistökunum. Svo getur maður stoppað, snúið sér við og notið útsýnisins. Maður uppsker eins og maður sáir sagði einhver snillingurinn. Svo er svo sannarlega víst!

I have a dream .....

Stonedead!

Hvað er svekkelsi?? Að óvart skvetta vætu yfir óvatnsþéttan farsímann sinn með þeim afleiðingum að hann drepst í óákveðinn tíma.  Á meðan reynir Eskimo Models að ná í mann og leggja inn nokkur skilaboð í talhólfið sem maður svo óheppilega hlustar á nokkrum dögum of seint. Andskotinn! Í  undirbúningi, algjört Zoolander ævintýri og algjör bömmer að missa af því svo ekki sé talað um seðlana sem maður missir af. Hummm .. svekkelsi??? 

Já!!!!

Er samt ekki svekktur lengur (",)    

Aijt ...