Aijt!
föstudagur, ágúst 06, 2004
Myndir...
Hér eru myndir frá því þegar Stebba systir kom í heimsókn frá Rednecknýlendunni Búðardal :) Fleiri myndir koma seinna m.a. frá Verslunarmannahelginni og svo þegar ég kenndi Óla bróður að kasta flugu, það var stuuuuð!
Góða Helgi allihoppa!
Aijt ...
miðvikudagur, ágúst 04, 2004
Ofvaxið grey ...
Fyndið hvernig fólk panikerar stundum þegar það lendir í lítilli lyftu ásamt manneskju sem það þekkir ekki baun. Ég var staddur í lyftu á leið niður af 5. hæð Tollstjórahússins við Tryggvagötu. Á 5. hæðinni hafði ókunnur maður hoppað með mér inn. Þetta var feitlaginn maður, leit út eins og ofvaxinn krakki. Gott og vel. Lyftan var þröng og fólki er ekkert sama þegar ókunnugt kvikindi dettur óboðið inn á persónulega svæði þess. Okkar persónulegu svæði skárust a.m.k. í þessari smáu lyftu en mér var slétt sama enda ýmsu vanur. Gaurinn var hinsvegar alveg á nálum greyið en ég spáði ekki mikið í það fyrr en ég tók eftir að hann rýndi í pappírshrúgu sem hann hafði milli spaðanna. Ég ákvað að gjóta augunum á lestrarefni félagans. Neiiii sko! Aumingja manngarmurinn hélt á því öfugu og þóttist djúpt sokkinn í málefni þess. Þettta var aaaaansi skondið ....
Tilviljun?
Kallinn á leið í Hafnarfjörð og umferðin að gera mig crasy. Ég stoppa á rauðu einhversstaðar í Garðabæ og lendi á eftir rauðri Corvettu sem er bandarískur sportbíll. Gott og vel. Á sama tíma glymur þetta kunnuglega lag í eyrum. Í útvarpinu þandi Prince raddböndin og söng eitt af sínum bestu 80´s slögurum, Little Red Corvette! Þetta fannst mér alveg stórmerkilegt ...
Aijt ...
þriðjudagur, ágúst 03, 2004
Gufudalur og ótengdur viðbjóðsviðbjóður!
Jæja, hvað syngur? Verslunarmannahelgin að baki og veturinn nálgast. Þetta er náttúrulega ekki hægt! Sumarið er eins og léttur skellur á rassinn. Fyrst kemur smá sviði og svo er allt búið. Það kemur og fer líkt og hendi sé veifað. Hvernig væri að taka þrjá vetrarmánuði og skella inn í sumarprogrammet og málið er dautt?? Er ekki hægt að leggja það fyrir hið almáttka Althinki?? Eða ekki ....
Þetta var fín helgi. Ég lagði Vesturlandið undir fót og skellti mér í veiði í Gufudalsá ásamt konu minni, foreldrum hennar og systur. Við gerðum góða veiði þar sem 70 sjóbleikjur lágu í valnum. Á leiðinni vestur stoppuðum við í Búðardal þar sem mín ástkæra systir er að vinna. Þvílíkt krummaskuð mar! Hún splæsdi á kallinn léttum banana- og súkkulaðisjeik áður en hún sparkaði mér öfugum út. Ég var víst byrjaður að láta sveitalubbana heyra það fyrir að láta þennan fordæmalausa redneckisma viðgangast á 21. öldinni. Neinei, eg var pollrólegur eins og alltaf. Pollrólegur á reyndar ekki við um sunnudagskvöldið en ég mun koma að því seinna. Já, þetta var massa ferð þar sem ég meðal annars veiddi, drakk beer, rauðvín og lét rasskella mig í Kana. Það mun ei koma fyrir aftur!
Á sunnudeginum um 17.oo leytið komum við í stórborgina. Í uppsiglingu var fyrsta fyllerí sumarsins og eftirvæntingin eftir því. Spennan lá í lofti og bjórinn beið þolinmóður í kælinum. Gunni kom í grenið um 2o.3o leytið og um leið var hafist handa við að vinna á veigunum á meðan Live hljómaði á fóninum. Í bland við bjórinn tókum við nokkur glös af Smirnov tjörueyði. Mjög svo hressandi til að byrja með en kallinn var ekki lengi í paradís því fljótlega fór að síga á ógæfuhliðina. Veruleg ölvun var farin að láta á sér kræla og þvoglumæltur kallinn var í þvílíku stuði. Planið var að hitta Vito og félaga í bænum og taka trúnó. Í leigubílnum á leiðinni í bæinn sagði ég hingað og ekki lengra. "Taxi driver, stop the fucking car, I have to gubba!" Ég stökk út og rúllaði yfir Hverfisgötuna og hlammaði mér á þrep fyrir utan dópbæli (kem að því eftir nokkrar). Ég leit í gaupnir mér og kúgaðist en ekkert kom. Innan skamms komu tveir gaurar út úr dópbælinu fyrir attan mig. Annar þeirra var ekkert að tvínóna við hlutina og bauð mér eitthvað til að hressa mig við. Ég frussaði: "No thanks" og hélt áfram að æla lofti. Stuttu seinna kom konan og systir hennar og drösluðu mér heim í grenið. Dagurinn eftir fór í verstu þynnku seinni ára með tilheyrandi hausverk og dolluferðum .. usssss! Láti mér þetta að kenningu verða...
Myndum mun ég henda inn vona bráðar!
Góðar stundir ...
Aijt ...
