Aijt!!
Aijt!
miðvikudagur, desember 29, 2004
 
Trúrækni ...

Fyndið nokk sem gerðist þegar við sátum í messu á jóladag. Á leið inn fékk ég sálmablað þar sem dagskrá messunnar var skjalfest lið eftir lið í smáatriðum. Í smáu letri á vissum stöðum stóð meira að segja hvenær átti að rísa úr sætum og hvenær átti að setjast. Gott og vel. Liðið var á messuna og allir höfðu risið úr sætum samkvæmt venju. Presturinn las úr biblíunni og spenna lá í lofti. Upplestur trúarjátningarinnar var næst á dagskrá. Það stóð skýrum stöfum á sálmablaðinu að söfnuðurinn átti að rísa úr sætum og standa meðan presturinn þuldi upp úr biblíunni og fram yfir trúarjátningu. Þegar kom að trúarjátningu ákváðu einn til tveir besserwisserar að setjast. Og að sjálfsögðu vegna óöryggis og hræðslu við að gera sig að fífli ákvað fólk að fylgja straumnum og setjast líka sem var bara vitleysa. Ég stóð sem fastast og lét ekki til leiðast. Ég sá að fólk var farið að setjast niður í kringum mig og ég hugsaði: "heyrðu, hver djö ..." Ég fann undirmeðvitundina öskra á mig: "sestu maður, allir eru að stara á þig!" Skynsemin sagði mér hinsvegar að ég hafði rétt fyrir mér og beit á jaxlinn þrátt fyrir þennan megna vandræðaleik. Smátt og smátt fór fólk að átta sig og einn og einn stóð aftur upp, settist aftur niður o.s.frv. Það var mikið óöryggi í gangi og það var eins og fólk vissi ekki hvað það ætti að gera. Samt stóð skýrum stöfum á sálmablaðinu að það ætti ekki að setjast fyrr en eftir trúarjátningu! Fyndið, að þegar einn eða tveir skíta upp á bak þá þarf restin af skrílnum að gera það líka. Alltaf að láta skynsemina ráða! :D Ég átti erfitt með að springa ekki úr hlátri þetta var svo pínlega asnalegt, en svona er þetta.

1680??

Svo vorum við systkinin ekki ánægð með predikunina sem var í stuttu máli á þá leið að allir ættu að lifa í ljósinu frá Guði og ganga á hans vegum í einu og öllu, annars týninst það í skugganum og verður vansælt o.s.frv. Feit alhæfing þar á ferð. Minnti á heilaþvottastarfsemi frá miðöldum.

Aijt ...

þriðjudagur, desember 28, 2004
 
2004 ...

Gleðilega hátíð landsmenn nær og fjær. Nú styttist óðum í nýtt ár og óhjákvæmilega fer maður að líta yfir farinn veg á árinu sem er að líða. Hummm, hvað gerðist nú markvert sem vert er að spá í? Ja, við FRAMarar héldum okkur uppi 5 árið í röð að ég held. "Kraftaverk" læsti hrömmunum í brækurnar og togaði okkur upp úr frjálsu falli í 1. deild. Ég verð nú að viðurkenna það að ég var svartsýnn, sitjandi á bekknum og lítandi mína menn tapa 6-1 á heimavelli í síðasta leik mótstins. Uss! Eftirminnilegast er auðvitað þegar ég eignaðist tvíburana sem reyndust svo ekki vera mínir þegar uppi var staðið ... úff! Þannig var það í draumheimum að minnsta kosti :D Í raunheimum er engin spurning hvað trónir í efsta sæti og það er trúlofun okkar Árdísar á Þorláksmessu. Sérstök stund sem mun vara inn í ókomna framtíð. Næst má nefna fjárfestinguna í Þórðarsveig 24 sem mun skilja eftir sig djúp. Hef bara eitt um það að segja og það er KLASSI! Nohh, og svo kaupin á lúxusveiðistöng og veiðihjólum frá gæðamerki í USA. Mín verður ánægjan að njóta frelsisins úti í vatni næsta sumar og brúka nýju græjurnar, gúffandi nesti og hlustandi á náttúruna. Og svo má náttúrulega ekki gleyma mínum nánustu sem eru við góða heilsu eftir árið. Engin áföll þar á bæ þökk sé góðri heilsu og jákvæðu hugarfari. Amma gamla er reyndar orðin ansi máttfarin en það er töggur í gömlu. Hún étur 150 ár í eftirmat án þess að svitna. Flutningur gamla settsins á Flókagötu 57 skilur eftir sig nett ör. Þangað duttu þau af Selvogsgrunni 16 þar sem kallinn varð að þeim manni sem hann er í dag, alveg gegnsteiktur ;D Flókagatan er reyndar alveg helkósí og verðugur arftaki Grunnsins. Mínar utanlandsferðir til meginalands Evrópu standa einnig upp úr því innleggið í reynslubankann mun koma sér vel í átökum lífsins. Það er af nægu að taka en þetta er það helsta að ég held. Hef pottþétt gleymt einhverju en þá hendi ég því bara inn í viðauka!

Aijt ...